Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair

Eining stefnu og umbreytinga sameinar þrjár lykildeildir hjá Icelandair, stefnumótun, skrifstofu umbreytinga og verkefnastofu.

Eva Brink og Guðrún Olsen.
Eva Brink og Guðrún Olsen. Mynd/Icelandair

Icelandair hefur nýlega ráðið Evu Brink forstöðumann rekstrarstýringar og Guðrúnu Olsen forstöðumann stefnu og umbreytinga.

Í tilkynningu flugfélagsins kemur fram að rekstarstýring, einingin sem Eva Brink tekur við, styðji við ákvarðanatöku og árangursstjórnun hjá Icelandair, auk þess að stýra fjárhagslegri markmiðasetningu og áætlanagerð.

„Eva kemur til Icelandair frá JBT Marel þar sem hún stýrði hagdeild fyrirtækisins eftir að hafa starfað sem fjármálastjóri fiskiðnaðar. Áður starfaði Eva bæði hjá Air Atlanta og Wow air.“

Fram kemur að Eva sé með meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU).

Þá segir að Guðrún Olsen stýri nýrri einingu sem sameini þrjár lykildeildir, stefnumótun, skrifstofu umbreytinga og verkefnastofu.

„Guðrún kemur til Icelandair frá Boston Consulting Group í Kaupmannahöfn þar sem hún starfaði frá árinu 2021 sem stjórnendaráðgjafi og verkefnastjóri með áherslu á stefnumótun, umbreytingar og kaup og sölu fyrirtækja.“

Áður hafi hún meðal annars starfað sem danskur og íslenskur lögmaður hjá NJORD Law Firm.

Guðrún er sögð með meistaragráðu í lögfræði (LLM) frá Kaupmannahafnarháskóla.