Um 24 stundir

24 stundir eru upplýsingaveita, þar sem fjallað er um valin málefni líðandi stundar, birtar tilkynningar fyrirtækja og annað fréttanæmt efni.

Útgefandi 24 stunda er Pelastikk ehf., félag í eigu Björgvins Guðmundssonar framkvæmdastjóra og eiganda KOM ráðgjafar ehf.

Ábyrgðarmaður er Björgvin Guðmundsson.

Með opnun vefsins var endurvakið heiti á íslensku dagblaði sem Árvakur gaf út frá 2005 til 2008. Það hét í fyrstu Blaðið, en var svo breytt í 24 stundir. Var því dreift á heimili um allt land endurgjaldslaust. Engin tengsl eru á milli þessarar útgáfu og hinnar fyrri, önnur en að heitið er nú notað á ný 17 árum síðar.