Gunnþór tekur við af Guðmundi Kristjánssyni í SFS

Gunnþór Ingvason
Gunnþór Ingvason verður formaður SFS fram að næsta aðalfundi. Ljósmynd/SVN

Á fundi stjórnar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi í dag, 17. júní, var samþykkt ný skipan í embætti og stjórnareiningar samtakanna í samræmi við samþykktir. Samþykkt var að Gunnþór Ingvason, varaformaður samtakanna, forstjóri Síldarvinnslunnar hf., tæki við formennsku í samtökunum fram að næsta aðalfundi. Þá var samþykkt að Ægir Páll Friðbertsson, ritari samtakanna, forstjóri Iceland Seafood ehf., taki við varaformennsku í samtökunum og að Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Gjögurs hf., taki við embætti ritara samtakanna.

Einnig var samþykkt að Daði Hjálmarsson, framkvæmdastjóri KG fiskverkunar hf., taki sæti í framkvæmdaráði samtakanna. Stjórn samþykkti einnig kjör Friðriks Friðrikssonar, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Brims hf., í stjórn samtakanna.

 Stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi þakkar Guðmundi Kristjánssyni, fráfarandi formanni, fyrir samstarfið í forystusveit samtakanna. Framlag Guðmundar til sjávarútvegs og samtakanna í gegnum tíðina er mikið. Stjórn harmar að leiðir skilji á þessum tímapunkti en Guðmundur verður áfram þátttakandi í starfi samtakanna sem öflugur félagsmaður.

Í tilkynningu frá SFS segir að samtakamáttur og samstaða um starfskilyrði íslensks sjávarútvegs sé leiðin fram á við til aukinnar verðmætasköpunar. Stjórn samtakanna óski Guðmundi velfarnaðar fram veginn við áframhaldandi uppbyggingu sjávarútvegs á Íslandi.