Forgangsmál að ná stjórn á fjármálum ríkisins

Sértækar umbætur og hagræðing í rekstri ríkisins nema um þrettán milljörðum króna í fjárlagafrumvarpi næsta árs.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir fjárlagafrumvarp 2026. Mynd/skjáskot úr streymi ráðuneytisins

Ríkisstjórnin hefur kynnt sitt fyrsta fjárlagafrumvarp, sem er fyrir árið 2026. Í færslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins er frumvarpið sagt fela í sér áframhald þeirrar vinnu sem lagt hafi verið upp með í fjármálastefnu og fjármálaáætlun fyrr á árinu, um bættan ríkisrekstur og aukinn stöðugleika.

„Með fjárlögunum eru þannig sköpuð skilyrði fyrir lækkun vaxta, til hagsbóta fyrir heimili og fyrirtæki landsins,“ segir þar.

„Forgangsmál ríkisstjórnarinnar er að ná stjórn á fjármálum ríkisins, greiða niður skuldir og binda enda á hallarekstur ríkissjóðs árið 2027. Þessi ríkisstjórn mun ekki eyða um efni fram en hún mun heldur ekki halda mikilvægum kerfum í fjársvelti,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026.

„Það krefst ábyrgðar og hagsýni en við munum standa vörð um lífsgæði almennings án þess að senda komandi kynslóðum reikninginn.“

Ráðuneytið segir forgangsraðað í þágu verðmætasköpunar, nauðsynlegrar innviðafjárfestingar, heilbrigðis og öryggis. Stór þáttur í þeirri vegferð sé hagræðing í rekstri ríkisins en samkvæmt fjárlagfrumvarpinu muni sértækar umbætur og hagræðing nema um 13 milljörðum króna.

„Með innleiðingu stöðugleikareglu hafa varanlegar skorður verið settar við ósjálfbærum útgjaldavexti. Á grundvelli hennar verða útgjöld ekki lengur aukin umfram vöxt verðmætasköpunar og komið hefur verið í veg fyrir að tímabundnum tekjum ríkisins sé eytt í varanleg útgjöld.“

Útgjaldavöxtur undanfarinna ára er sagður hafa valdið sveiflum og ýtt undir verðbólgu. Tekjur ríkissjóðs séu á hinn bóginn svipað miklar og síðast þegar ríkissjóður var rekinn með afgangi.

„Þess vegna er einkum lögð áhersla á að ná stjórn á ríkisútgjöldum, s.s. með hagræðingu, einföldun og aukinni skilvirkni, en gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs haldist stöðugar. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til umbóta og hagræðingar eru þegar farnar að skila sér en afkoma ríkissjóðs samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er 11 milljörðum króna betri en lagt var upp með í fjármálaáætlun.“

Þá eru skuldir ríkisins sagðar umtalsvert hærri en í nágrannaríkjunum og að vaxtakostnaðurinn hafi bitnað á mikilvægum verkefnum á borð við uppbyggingu vega, raforkukerfisins og annarra innviða.

„Að greiða þær niður snýst um almannahagsmuni enda er vaxtakostnaðurinn hærri en framlög til margra mikilvægra málaflokka.“

Fjármálaráðuneytið segir að með tiltekt í ríkisfjármálunum hafi þegar skapast svigrúm til þess að mæta þeim brýnustu áskorunum sem íslenskt samfélag standi frammi fyrir. Nýjum útgjöldum í fjárlagafrumvarpinu sé forgangsraðað til verkefna sem stuðli að öryggi fólks, svo sem í heilbrigðiskerfinu, í samgöngum og víðar.

Frekari upplýsingar um fjárlagafrumvarpið er að finna á vefnum fjárlög.is.