Skoðun
Góðar hugmyndir
Þó að samkvæmt þjóðsögunni hafi púkinn á fjósbitanum fitnað af blótsyrðum fjósamanns, er fjarri þessum púka að ala á óvild eða óvönduðu orðfæri.
Fremur er hér vettvangur þar sem púkinn getur bent á eitthvað sem betur mætti fara eða jafnvel hent góðlátlegt grín að einhverju. Hér verður í öllu falli heimavöllur þess fjósbitapúka sem býr á vef 24 stunda, sem hafið hefur göngu sína með margvíslegri upplýsingagjöf.
Var þörf á enn einum fréttamiðlinum til að fylla internetið? Já, púkinn er á því að ekki veiti af og að góð hugmynd hafi verið að hleypa einum slíkum af stokkunum.
Það var eftirsjá af dagblaðinu 24 stundum á sínum tíma, rétt eins og öllum öðrum blöðum sem gefið hafa upp öndina síðustu ár. Núna stígur fram vefur 24 stunda með sitt framlag í fjölmiðlaumhverfið. Fjölbreytni er góð. Það eru algild sannindi.