Kæru Bílabúðar Benna á hendur ríkinu vísað frá

ECHR og Bílabúð Benna.
Skjáskot af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu yfir mynd Google Earth af Bílabúð Benna. Mynd/Samsett

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Bílabúðar Benna á hendur íslenska ríkinu vegna dómaframkvæmdar í deilu um galla í Porche Cayenne bifreið.

Bílabúð Benna taldi að brotið hafi verið gegn 6. grein Mannréttindasáttmálans með því að fyrirtækið hafi ekki notið réttlátrar málsmeðferðar í deilu við kaupanda Porche Cayenne jeppabifreiðar.

Fyrrverandi framkvæmdastjóri Dómstólasýslunnar vann mál gegn Bílabúð Benna vegna ólyktar í Porsche Cayenne bifreið, fyrst fyrir héraðsdómi sumarið 2020, en sá dómur var svo staðfestur í Landsrétti í ársbyrjun 2022.

Í málatilbúnaði bílasölunnar var bent á að samkvæmt birtri fundargerð hefði dómstjórinn fyrrverandi verið viðstaddur fund þar sem ákveðið var að skipa dómarann sem fara átti með málið. Fyrirtækið taldi þetta skapa réttmæta tortryggni gagnvart hlutleysi dómara.

Í úrskurði dómstólsins kemur fram að af hálfu ríkisins hafi verið lögð fram undirrituð upprunaleg fundargerð þar sem fram kom að dómstjórinn fyrrverandi hefði í raun vikið af fundi áður en málið var tekið fyrir.

Mistök hefðu orðið við birtingu fundargerðarinnar á vef Dómstólasýslunnar, þar sem setningin um vanhæfi dómstjórans hafi óvart verið felld út.

Mannréttindadómstóllinn taldi trúverðugt að um innsláttar- eða ritstjórnarmistök hefði verið að ræða og sá ekki ástæðu til að draga áreiðanleika fundargerðarinnar í efa.

Niðustaða dómstólsins var því að staðhæfingar Bílabúðar Benna ættu sér enga stoð og að kvörtunin væri tilefnislaus. Með þeim rökum var kærumálinu vísað frá dómi.

Ávörðunina má lesa í heild á vef Mannréttindadómstólsins.