Fyrsti íslenski sendiherrann með aðsetur á Spáni

Utanríkisráðuneytið segir mikinn samhljóm með stefnu íslenskra og spænskra stjórnvalda varðandi mannréttindavernd, loftslagsmál og þróunarsamvinnu.

Kristján Andri Stefánsson sendiherra afhendir Felipe VI Spánarkonungi trúnaðarbréf sitt í spænsku konungshöllinni.
Kristján Andri Stefánsson sendiherra afhendir Felipe VI Spánarkonungi trúnaðarbréf sitt í spænsku konungshöllinni. Mynd/Utanríkisráðuneyti Spánar

Kristján Andri Stefánsson sendiherra hefur afhent Felipe VI Spánarkonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Spáni. Kristján Andri er fyrsti íslenski sendiherrann sem hefur aðsetur í Madrid höfuðborg Spánar og þjónar umdæminu þaðan.

Fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að á fundi Kristjáns Andra með konungi og utanríkisráðherra Spánar í gær, föstudaginn 12. september, hafi stofnun sendiráðs á Spáni verið fagnað. Rætt hafi verið um leiðir til að efla og styrkja farsæl tengsl Íslands og Spánar enn frekar bæði á sviði viðskipta og menningar. 

„Alþingi ákvað við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2025 að opnað yrði sendiráð í Madrid á Spáni á þessu ári. Tillagan var rökstudd með vísan til þess mikla fjölda Íslendinga sem hefur fasta búsetu á Spáni til lengri og skemmri tíma auk þess sem þangað liggur stríður straumur ferðamanna árið um kring,“ segir þar.

Þá er bent á að viðskipti milli landanna standi á gömlum merg.

„Vöruútflutningur frá Íslandi til Spánar hefur aukist jafnt og þétt síðasta áratuginn og sum árin hefur Spánn verið einn stærsti einstaki vöruútflutningsmarkaðurinn eftir því hvað mikið af áli hefur farið til Spánar.“

Fram kemur að Spánn sé þriðji mikilvægasti útflutningsmarkaður sjávarafurða frá Íslandi með stöðuga átta prósenta hlutdeild í heildarútflutningsverðmætum.

„Saltfiskur vegur enn þungt í útflutningi frá Íslandi en útflutningur á frosnum afurðum og í seinni tíð á laxi hefur sömuleiðis farið vaxandi.“

Utanríkisráðuneytið segir að umtalsverður jákvæður viðskiptahalli hafi verið í vöruviðskiptum landanna undanfarin ár en í þjónustuviðskiptum snúist dæmið við, enda sé Spánn vinsæll áfangastaður fyrir íslenska ferðamenn. Þá séu fasteignakaup Íslendinga á Spáni einnig umtalsverð. 

„Íslensk stjórnvöld hafa átt í farsælu samstarfi við spænsk stjórnvöld á sviði utanríkis- og öryggismála og spænski flugherinn sinnti nýverið loftrýmisgæslu á vegum Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Spánn hefur jafnframt skipað sér í fremstu röð þeirra sem fordæma harðlega hernaðaraðgerðir Ísraels á Gaza og hafa beitt sér fyrir aðgerðum til að setja aukinn þrýsting á Ísrael, m.a. á vettvangi Evrópusambandsins.“

Ráðuneytið segir mikinn samhljóm með stefnu íslenskra og spænskra stjórnvalda varðandi mannréttindavernd, loftslagsmál og þróunarsamvinnu.

„Ötullega hefur verið unnið að opnun sendiráðsins að undanförnu. Sendiherra og starfslið sendiráðsins er þegar tekið til starfa en sökum endurbóta á skrifstofuhúsnæði sendiráðsins getur skrifstofan þó ekki opnað fyrr en seinna í haust. Nánar verður tilkynnt um það síðar,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.