Samkvæmt nýbirtri mælingu Hagstofu Íslands hækka hvort tveggja vísitala byggingarkostnaðar og vísitala framleiðsluverðs um 0,1 prósent á milli mánaða.
Vísitala byggingarkostnaðar í ágúst er 125,7 stig, en fram kemur í birtingu Hagstofunnar á tölunum að kostnaður við innflutt efni hafi dregist saman um 0,3 prósent, en kostnaður við innlent efni aukist um 0,3 prósent.
Þá hafi kostnaður við vélar, flutning og orkunotkun aukist um 0,1 prósent.

Þá birti Hagstofan breytingu vísitölu framleiðsluverðs í júlí 2025, en hún hækkaði líka um 0,1 prósent frá fyrri mánuði.
„Framleiðsluverð sjávarafurða hækkaði um 0,4 prósent og framleiðsluverð stóriðju hækkaði um 0,5 prósent. Framleiðsluverð á matvælum hækkaði um 0,3 prósent.“
