Segja þörf á samráðsvettvangi stjórnvalda og hagaðila

Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að íslenskur iðnaður hafi virka og faglega rödd í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og segjast reiðubúin til áframhaldandi samstarfs við stjórnvöld í þágu markvissrar og samræmdrar hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu.

Samsett mynd.

Samtök iðnaðarins (Si) leggja ríka áhersla á mikilvægi þess að samkeppnishæfni Íslands og sérstaða landsins séu höfð að leiðarljósi við innleiðingu reglna á grundvelli samningsins um evrópska efnahagssvæðið (EES).

Í nýrri umsögn á vef Alþingis um drög að forgangslista við hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu fyrir árin 2024 – 2029 vara samtökin við því að gengið sé lengra í íþyngjandi ákvæðum en nauðsynlegt sé og ítreka nauðsyn þess að afstaða stjórnvalda byggi á vönduðu hagsmunamati og traustri upplýsingaöflun.

„Samtökin fagna því að meirhluti þeirra mála sem lögð eru fram í drögum að forgagnslista við hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB snerta iðnað,“ segir í frétt á vef samtakanna.

Bent er á að SI hafi um árabil gegnt lykilhlutverki í hagsmunagæslu íslensks iðnaðar í Evrópumálum. Þá eru samtökin sögð hvetja til þess að komið verði á sameiginlegum samráðsvettvangi stjórnvalda og hagaðila þar sem ný mál á vettvangi Evrópusambandsins verði greind snemma. Það skipti ekki síst máli í ljósi breyttra alþjóðlegra aðstæðna og aukinna áskorana í öryggis- og varnarmálum.

„Með markvissri greiningu, nánu samstarfi við félagsmenn og virkum tengslum við innlenda og erlenda samstarfsaðila hafa SI byggt upp víðtæka þekkingu og öfluga aðkomu að málefnum sem varða Evrópusambandið og EES-samninginn.“

Samtökin eru sögð taka virkan þátt í samnorrænu samstarfi með systursamtökum á Norðurlöndum og bent á að þau eigi fulltrúa í ráðgjafarnefnd EFTA, sem sé mikilvægur vettvangur fyrir samráð, upplýsingamiðlun og formlega aðkomu að Evrópumálum á fyrstu stigum.

„Þá eru SI aðilar að Business Europe, stærstu hagsmunasamtökum atvinnurekenda í Evrópu, og taka þátt í reglulegum fundum þar sem stefna og ákvarðanataka ESB eru til umfjöllunar.“