Krónan hefur tilkynnt breytingar í stjórnendateymi sínu. Fram kemur í tilkynningu að breytingarnar séu til að styðja við vöxt, efla upplifun viðskiptavina og undirstrika skýra framtíðarsýn Krónunnar og skuldbindingu til stöðugra umbóta og framúrskarandi þjónustu.
Sigurður Gunnar Markússon, sem gegnt hefur hlutverki forstöðumanns þróunar og uppbyggingar verslana Krónunnar, hefur tekið við sem forstöðumaður innkaupa og vöruflokkastýringar. Sigurður hefur áralanga og víðtæka reynslu af störfum innan Krónunnar síðastliðin 30 ár og verið leiðandi afl í þróun og uppbyggingu fyrirtækisins. Hann leiddi meðal annars innkaup og vöruflokkastýringu Krónunnar í tólf ár fram til ársins 2021, og kemur því inn í hlutverkið með dýrmæta þekkingu og reynslu sem mun nýtast vel við að mæta væntingum og þörfum viðskiptavina.
Samhliða þessum breytingum hefur Gunnhildur Jódís Ísaksdóttir verið ráðin í stöðu forstöðumanns viðskiptaþróunar og umbóta. Gunnhildur hefur frá byrjun árs 2024 starfað sem verkefnastjóri viðskiptaþróunar og umbóta hjá Krónunni en áður starfaði hún í viðskiptaþróun hjá Volvo Penta í Svíþjóð og síðar sem umbótasérfræðingur hjá Marel hér á landi. Gunnhildur er með M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Chalmers University of Technology. Með þessu hlutverki er lagður enn frekari grunnur að umbótum og nýjum tækifærum til að skapa lausnir sem styðja við framúrskarandi þjónustu og vöxt Krónunnar til framtíðar.
„Við hjá Krónunni leggjum ríka áherslu á að hlusta, læra og þróast með það að markmiði að einfalda líf viðskiptavina okkar, bæta upplifun þeirra og tryggja þeim fjölbreyttasta vöruúrvalið á allra hagkvæmasta verðinu. Með skýra sýn og sameiginlegan metnað erum við að móta næstu kynslóð þjónustu í íslenskri dagvöru,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.