„Ef ekki fæst aukið fjármagn mun Ísland dragast hratt aftur úr hinum Norðurlöndunum og erfitt að tryggja jafnræði ef nýir sjúklingar geta ekki fengið meðferðir sem fordæmi eru fyrir,“ segir í fundargerð lyfjastofnunar Landspítalans.
Í frétt á vef Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, er bæði tekið undir og athygli vakin á áhyggjum nefndarinnar sem koma fram í nýlega birtum fundargerðum hennar.
Vitnað er til minnisblaðs forstjóra Landspítala til heilbrigðisráðherra fyrr á árinu þar segir að til að halda kostnaði við ný lyf innan heimilda þurfi Landspítalinn meðal annars að hafna greiðsluþátttöku í nýjum lyfjum og geti ekki sett nýja sjúklinga á meðferðir sem samþykktar hafi verið á síðasta ári.
Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, segir samtökin taka undir þær áhyggjur sem komi fram í fundargerðum lyfjanefndar Landspítalans og telji að fjárveitingarvaldið hljóti að þurfa að taka við sér til að rétta þessa stöðu og tryggja sjúklingum heilbrigðisþjónustu sem standist samanburð við nágrannalönd Íslands.
Reynt hafi verið að vekja athygli á stöðunni og benda á leiðir til úrbóta, svo sem með breytingum á reglum sem hér gilda um opinbera verðlagningu lyfja. Til bóta yrði að miða, í stað lægsta verðs, við meðalverð Norðurlanda um leið og í verðákvörðunum yrði tekið tillit til sérstöðu landsins varðandi hlutfallslega háan dreifingar- og umsýslukostnað.
Fram kemur að vísbendingar séu um að þær ábendingar séu að skila sér og stjórnvöld sögð hafa hafið vinnu við að skoða markaðsaðstæður hér á landi og muni eiga samtal við hagsmunaaðila í þeirri vinnu.
Breytingar í þessa átt eru sagðar myndu verða til mikilla bóta, en þyrftu líka stuðning með auknum fjárheimildum.
„Ábendingar lyfjanefndar Landspítalans eru til marks um að skortur á fjárheimildum sé því miður tekinn að bitna á sjúklingum,“ segir Jakob Falur í frétt Frumtaka.
Morgunblaðið fjallar einnig um málið í dag í frétt á forsíðu og á vef.