Stórar eignir í fjölbýli þrisvar sinnum lengur í sölu en smærri

Tíminn sem tekur að selja íbúðir á höfuðborgarsvæðinu hefur lengs á einu ári, mest fyrir stærstu íbúðirnar. Sölutími þeirra hefur tvöfaldast á meðan sá tími sem tekur að selja minnstu íbúðirnar hefur lengst um 14 prósent.

Reykjavík, Hlíðahverfi, Öskjuhlíð og Vatnsmýri.
Horft yfir Hlíðar, Öskjuhlíð og Vatnsmýri í Reykjavík. Mynd/ÓKÁ

Sá tími sem tekur að selja íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, svonefndur birgðatími, hefur lengst mikið undanfarna mánuði. Í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) kemur fram að í mars síðastliðnum hafi hann mælst rúmlega sex mánuðir og er þá miðað við þriggja mánaða meðaltal.

„Birgðatíminn mældist álíka langur á landsbyggðinni en í nágrenni höfuðborgarsvæðisins mældist þriggja mánaða meðaltalið um 10 mánuðir í mars.“

HMS segir birgðatíma gefa til kynna hversu marga mánuði það tæki að selja allt framboð af íbúðum til sölu ef söluhraði síðasta mánaðar héldist óbreyttur. Þá hafi birgðatími sérbýlis og fjölbýlis verið áþekkur undanfarna mánuði, en sé þó mislangur eftir stærðarflokkum fjölbýlisíbúða.

„Birgðatíminn er skemmstur fyrir minnstu íbúðirnar en lengist eftir því sem íbúðirnar stækka.“

Miðað við söluhraða síðasta mánaðar segir HMS að tæki um þrjá mánuði að selja allt framboð af fjölbýlisíbúðum sem sé 60 fermetrar eða minni að stærð, á meðan það tæki um ellefu mánuði að selja allt framboð af íbúðum sem séu stærri en 120 fermetrar.

„Birgðatíminn mælist um 5,5 mánuðir fyrir 60 til 90 fermetra íbúðir og um 8 mánuðir fyrir 90-120 fermetra íbúðir.“

Þá kemur fram að birgðatíminn hafi lengst fyrir alla stærðarflokka frá áramótum samhliða mikilli framboðsaukningu og færri kaupsamningum samanborið við undanfarin tvö ár.

„Birgðatíminn hefur þó lengst mest fyrir stærstu íbúðirnar þar sem hann hefur tvöfaldast á einu ári á sama tíma og birgðatími minnstu íbúðanna lengdist um 14%.“

Birgðatími 60 til 90 fermetra íbúða er nú sagður tæplega 40 prósent lengri en á sama tíma í fyrra og birgðatími 90 til 120 fermetra íbúða um 66 prósent lengri.

Þá kemur fram að í mars síðastlinum hafi rétt tæplega þúsund kaupsamningar um íbúðarhúsnæði verið gefnir út á landinu öllu, samanborið við 807 samninga í febrúar.

„Þinglýstum kaupsamningum fjölgaði því um 23% á milli mánaða, sem er í samræmi við árstíðarsveiflu á markaðnum þegar líður á vorið.“

Umsvifin á markaðnum hafi þó verið um það bil 12 prósentum minni en í mars í fyrra þegar 1.113 kaupsamningum var þinglýst.

Þá hafi kaupsamningum á fyrsta ársfjórðungi jafnframt fækkað á milli ára.

„Alls 2.438 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði var þinglýst á fyrstu þremur mánuðum þessa árs sem samsvarar tæplega 11% fækkun frá því á sama tímabili í fyrra þegar 2.727 kaupsamningum var þinglýst.“

Umsvifin hafi jafnframt verið minni en á fyrsta ársfjórðungi ársins 2024, en nokkru meiri en á fyrsta ársfjórðungi ársins 2023.