Verðlagsnefnd hækkar verð á mjólk og mjólkurvörum

Kýr, mjólkurbú, mjaltir, kúreki, kúrekstur
Kúreki að störfum. Mynd/ÓKÁ

Lágmarksverð til bænda á fyrsta flokki mjólkur hækkar um 2,4 prósent samkvæmt ákvörðun verðlagsnefndar búvara. Þá hækkar heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara um 2,19 prósent.

Í tilkynningu atvinnuvegaráðuneytisins kemur fram að verðbreytingarnar taki gildi 11. þessa mánaðar.

„Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í desember 2025. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 2,47% frá desember 2025 til mars 2026,“ segir þar.

Fram kemur að heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækki um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkunar á vinnslu- og dreifingarkostnaði.

„Síðasta verðlagning byggði á verðlagi í desember 2025 og er reiknuð hækkunarþörf vinnslu- og dreifingarkostnaðar 1,89%.“

Breytingar á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara er sagðar byggja á kostnaðarbreytingum frá desember 2025 til mars 2026 en á sama tíma hafi vísitala neysluverðs hækkað um 1,9 prósent.

„Í mars mánuði er gert ráð fyrir áburðarkaupum bænda sem skýrir að ákveðnu leyti hækkun verðlagsgrundvallar umfram almennar verðlagsbreytingar.“