Fjórtán börn fengu afhentan ferðastyrk Vildarbarna Icelandair

Ferðasjóður Vildarbarna var stofnaður 2003 og úthlutað úr honum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Ferðastyrkur Vildarbarna Icelandair var afhentur fjórtán börnum og fjölskyldum þeirra á sumardaginn fyrsta.
Ferðastyrkur Vildarbarna Icelandair var afhentur fjórtán börnum og fjölskyldum þeirra á sumardaginn fyrsta. Mynd/Icelandair

Fjórtán börnum var afhentur ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna Icelandair á sumardaginn fyrsta. Afhendingin fór fram í Icelandair húsinu í Hafnarfirði.

„Sjóðurinn er nú á sínu 23. starfsári og alls hafa vel yfir 800 fjölskyldur ferðast á vegum hans frá upphafi en úthlutunin er sú 41. í röðinni,“ að því er fram kemur í tilkynningu.

Markmið sjóðsins er sagt vera að gefa langveikum börnum eða börnum sem búa við sérstakar aðstæður, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til þess að fara í draumaferð til útlanda.

„Í hverjum styrk felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess. Allur kostnaður er greiddur – flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarin ár afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.“ 

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að félaginu sé afar mikilvægt að standa áfram að verkefninu, en vildarbarnasjóðurinn hafi um árabil gert börnum og fjölskyldum þeirra kleift að upplifa einstakar draumaferðir.

„Starf sjóðsins væri ekki mögulegt án gjafa og stuðnings frá viðskiptavinum, fyrirtækjum og einstaklingum og fyrir það erum við innilega þakklát. Að baki þessari samfellu og árangri stendur samhentur hópur fólks, allt frá frumkvöðlum sjóðsins til stjórnar og starfsfólks, sem hefur lagt mikla vinnu og alúð í að gera þetta mikilvæga starf að veruleika,“ segir hann.

Fram kemur að Ferðasjóður Vildarbarna hafi verið stofnaður 2003 með það að markmiði að styðja við langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður. Úthlutanir eru tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.