Ísland gegnir forystuhlutverki við gerð fyrstu alþjóðastaðla um réttindi barna. Fram kemur í færslu mennta- og barnamálaráðuneytisins að staðlarnir verði gefnir út af alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO.
„Þeir munu gera ríkjum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, stofnunum og hagsmunasamtökum kleift að færa réttindi barna úr yfirlýsingum og lagaramma yfir í raunverulegar, rekjanlegar og mælanlegar aðgerðir,“ segir þar.
Fram kemur að ráðuneytið hafi átt frumkvæði og leitt vinnu við gerð alþjóðastaðals um Barnahús sem rekin séu víða um heim að íslenskri fyrirmynd.
„Frumkvæði mennta- og barnamálaráðuneytisins hefur leitt til þess að Ísland mun á komandi misserum taka forystu í stöðlun um réttindi barna í nýrri tækninefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO, ISO/TC 356 – Children‘s rights management. Mannréttindi verða nú í fyrsta sinn skrifuð inn í viðurkennd alþjóðleg verkfæri og verða þannig markvisst viðfang stjórnunar.“
Formaður nýju tækninefndarinnar er Páll Magnússon, sendiráðunautur í fastanefnd Íslands í Genf sem jafnframt er sagður hafa gegnt lykilhlutverki í gerð alþjóðastaðals um Barnahús.
„Þrátt fyrir víðtæka fullgildingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur framkvæmd hans víða verið ósamræmd og skort hefur á kerfisbundnum, mælanlegum og stöðluðum aðferðum til innleiðingar.“
Markmið íslenskra stjórnvalda er sagt vera að búa til alþjóðlegan vettvang innan ISO til að styðja við samræmda framkvæmd réttinda barna.
„Ísland er stolt af því að fara með formennsku í nýrri tækninefnd ISO um stjórnun réttinda barna (Children’s Rights Management) í gegnum IST. Með því að leiða saman stjórnvöld, sérfræðinga og borgaralegt samfélag styrkir þetta frumkvæði innleiðingu á heimsvísu.“

Haft er eftir Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að markmiðið sé að réttindi barna endurspeglist í raunverulegri framkvæmd og ákvörðunum.
„Ísland er stolt af formennsku sinni í tækninefndinni í gegnum Staðlaráð Íslands. Með því að leiða saman stjórnvöld, sérfræðinga og borgaralegt samfélag styrkir þetta frumkvæði innleiðingu á réttindum barna á heimsvísu,“ segir hún.
Mikill alþjóðlegur áhugi
Ráðuneytið segir áhuga þátttöku í nefndinni til staðar, en þegar hafi 45 af 175 aðildarlöndum ISO, eða um fjórðungur allra meðlima, þegar lýst yfir vilja til að taka þátt í gerð nýrra staðla á sviði barnaréttar.
Þá hafi margar alþjóðastofnanir og samtök lýst vilja til þátttöku í nefndinni.
„Þessi breiði alþjóðlegi stuðningur endurspeglar vaxandi viðurkenningu á því að réttindi barna eru ekki aðeins lagalegt eða siðferðilegt viðfangsefni, heldur einnig stjórnsýslu- og stjórnkerfismál sem krefst skýrra ferla, ábyrgðar og mælanlegra aðgerða,“ segir í færslu ráðuneytisins.
Sagt geta snert líf milljóna barna um allan heim
Með stofnun ISO/TC 356 segir ráðuneytið að brotið hafi verið blað í gerð alþjóðlegra staðla, en einnig á sviði barnaréttar.
„Fyrir Ísland felur þetta í sér viðurkenningu á íslensku frumkvæði og veitir Íslandi tækifæri til að vera leiðandi og hafa stefnumótandi áhrif. Jafnframt eflir þetta stöðu Íslands í alþjóðlegu mannréttindastarfi.“
Mikilvægast sé þó að með gerð alþjóðlegra staðla, sem nýtist ríkjum, stofnunum og fyrirtækjum, verði til tól sem styðji við innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þar með við réttindi barna og barnavernd.