Skoðun
Margt býr í myrkrinu
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í vor má búast við að margvíslegum málum verði velt upp í umræðunni sem dæmum um sleifarlag við stjórn mála.
Í gegn um tíðina hefur verið fjargviðrast yfir ýmsu mismerkilegu, svo sem umgengni og grasslætti á umferðareyjum. Sjálfsagt brennur þetta á einhverjum.
Sveitarstjórnarmálin eru hins vegar í eðli sínu dálítið leiðinleg að mati Púkans. Þetta eru framkvæmda- og útgjaldamál sem kannski síður snúast um einhverja grunnstefnu eða lífsýn en verkvit og skynsamlega nálgun.
Oftar en ekki eru þetta holræsamál, gatnagerð og svo aðbúnaður skóla og hvernig sveitarfélög sinni lögbundnum verkefnum sínum.
Púkinn varð var við eitt svona mál í léttvægari kantinum í umræðu um Reykjavíkurborg og snýr það að lýsingu, eða öllu heldur skort á henni í borgarlandslaginu.
Hins vegar er það svo að útlendingum sem hingað koma bregður oft við að sjá hvað allt er rækilega upplýst af skærum götuljósum.
Þeir eiga þessu ekki að venjast, enda kannski fremur haldið í við rafmagnsnotkun á heimaslóð þar sem óvíst er að rafmagnið sé framleitt með jafnsjálfbærum hætti og hér.
Púkinn hjó sjálfur eftir þessum mun þegar hann átti leið í fyrrum höfuðstað þjóðarinnar ekki alls fyrir löngu.
Í Kaupmannahöfn er hreint ekki verið að spandera flóðljósum út um allt og víða töluvert skuggsýnt í götum og á göngustígum í almenningsgörðum.
Púkanum fannst þetta reyndar bara notalegt og jafnvel til eftirbreytni. En kannski er hann bara þannig gerður að honum líði betur í myrkrinu. Fólk er jú alls konar, og púkar líka.