Listasafn Einars Jónssonar og Listasafn Íslands voru formlega sameinuð um áramótin, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að stefna ríkisins sé að sameina stofnanir „með það að leiðarljósi að efla starfsemi þeirra og þjónustu við almenning og ná þannig betri nýtingu opinberra fjármuna“.
Fram kemur að sameiningin bjóði upp á ýmis tækifæri, svo sem samræmdan opnunartíma í söfnunum þremur sem tilheyra Listasafni Íslands. Það eru Safnahúsið á Hverfisgötu, Listasafnið við Fríkirkjuveg og nú Listasafn Einars Jónssonar við Hallgrímstorg.
„Auk þess sem gestir geta nú keypt einn miða sem veitir aðgang að öllum söfnunum þremur.“

Haft er eftir Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra, að fagnaðarefni sé að hið sameinaða safn geti tekið á móti fleiri gestum með því að fjölga þeim klukkustundum sem menningarverðmæti þjóðarinnar séu til sýnis.
„Sameiningin býður einnig upp á að forvarsla verður bætt, innviði styrkjast með sameiginlegum rekstri, kynningar- og fræðslustarf mun eflast og er í raun hafið líkt og dagskrá safnsins ber vott um,“ segir hann.
Einnig sé stefnt af því að bæta aðgengi út í höggmyndagarðinn úr safninu og ná þannig enn betur til þeirra þúsunda gesta sem heimsæki garðinn á ári hverju.
Þá er haft eftir Ingibjörgu Jóhannsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, að um leið og vilji sé til að ná betur til almennings og nemenda á öllum aldri þurfi söfnin líka að vera spennandi kostur fyrir erlenda gesti.
„Með auknum stuðningi náum við að lengja opnunartíma á Listasafni Einars Jónssonar og getum þá tekið á móti fleiri gestum á safnið en á torgi fyrir framan Hallgrímskirkju koma tvær milljónir ferðamanna á hverju ári – steinsnar frá þessari þjóðargersemi sem safnið er,“ bendir hún á.
Til að fagna sameiningu safnanna er gestum og gangandi boðið til þrettándagleði í safninu á morgun, 6. janúar.
Þá kemur fram að opnunartími safnsins sé nú milli tíu og fimm alla daga, en áður hafi safnið bara verið opið frá klukkan tólf á hádegi og lokað á mánudögum.