GRECO, samtök ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu, leggja til að í siðareglum bæði lögreglu og Landhelgisgæslu verði betur tekið á hagsmunaárekstrum og starfsemi á vettvangi stjórnvalda.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í fimmtu úttekt stofnunarinnar á vörnum gegn spillingu á Íslandi og eflingu heilinda hjá æðstu handahöfum framkvæmdarvalds og löggæsluyfirvöldum.
Í skýrslunni kemur fram að Ísland hafi innleitt með fullnægjandi hætti tilskilinn fjölda þeirra átján tilmæla sem beint var að stjórnvöldum í fimmtu úttekt GRECO. Af þeim hafi þrettán verið innleidd með að fullu og fjögur til viðbótar innleidd að hluta til.
„Á grundvelli þessa telur GRECO ekki lengur þörf á áframhaldandi eftirfylgni vegna fimmtu úttektarinnar og er henni þar með formlega lokið gagnvart Íslandi,“ segir í umfjöllun utanríkisráðuneytisins.
Þar er líka bent á að í skýrslu GRECO sé tekið fram að Ísland hafi náð árangri á báðum sviðum, meðal annars með setningu laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, endurskoðun siðareglna, aukinni fræðslu og verklagsreglna innan lögreglu og Landhelgisgæslu Íslands.
„Þá er sérstaklega vísað til umbóta á sviði ráðninga og innra eftirlits innan lögreglu, skýrari reglna um gjafir og fríðindi, endurbættrar fræðslu um siðferði og heilindi, auk nýrrar löggjafar um innra gæðaeftirlit lögreglu.“
Fram kemur að sjötta úttekt GRECO á Íslandi eigi að fara fram á næsta ári og lúti þá að vörnum gegn spillingu á sveitarstjórnarstiginu.