Búið er að formgera samstarf utanríkisráðuneytis, HÍ og HR um styrki til rannsóknarverkefna er varða þróunarsamvinnu í Afríku.
Fram kemur í færslu utanríkisráðuneytisins að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi síðastliðinn föstudag fundað með Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, og Ragnhildi Helgadóttur, rektor Háskólans í Reykjavík, um samstarf við uppbyggingu sérþekkingar á málefnasviðum þróunarsamvinnu.
„Tilefni fundarins má rekja til breytinga á sviði alþjóðamála en landfræðipólitískt mikilvægi landa í Suðri, þar á meðal þróunarríkja, fer vaxandi með aukinni þátttöku þeirra innan alþjóðakerfisins,“ segir í umfjöllun ráðuneytisins.
Haft er eftir Þorgerði Katrínu að lengi hafi brunnið á henni að efla samtalið við fræðasamfélagið um þessi málefni.
„Í síbreytilegu pólitísku landslagi skiptir nefnilega aukin þekking á þróunarríkjunum miklu máli, bæði til að skilja stjórnmálaþróun og lýðfræðilegar breytingar, en ekki síst til að stuðla að efnahagslegri uppbyggingu og öryggi,“ segir hún.
Þannig sé líka betur hægt að styðja við áherslumál Íslands á þessum vettvangi, um virkt alþjóðakerfi, lýðræðislegt stjórnarfar, mannréttindi, jafnrétti, loftslags- og umhverfismál, sem og sjálfbæra nýtingu auðlinda.
„Þá gerir fræðileg þekking og nálgun okkur betur kleift að skilja þær áskoranir sem þróunarríkin búa við.“
Fram kemur að á fundinum hafi utanríkisráðherra og rektorar háskólanna formgert samstarf um styrkveitingar frá utanríkisráðuneytinu til rannsóknarverkefna við að byggja upp tengsl við háskóla í Afríku sunnan Sahara og styrkja þannig þekkingu á málefnasviðum alþjóðlegrar þróunarsamvinnu hérlendis.
„Reynslan hefur sýnt að rannsóknarverkefni skili nánu samstarfi vísindafólks við kollega í samstarfsríkjum. Þá er þess vænst að styrkirnir stuðli að nýliðun innan þróunarsamvinnu í gegnum nýdoktora með sérhæfingu á málefnasviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu,“ segir í færslu ráðuneytisins.
Styrkirnir verða veittir í gegnum Doktorssjóð Háskóla Íslands og Þróunarsamvinnusjóð Háskólans í Reykjavík, en umsýsla sjóðanna er alfarið sögð á forræði skólanna.
Þá segir að samstarf við fræðasamfélagið á Íslandi um þróunarsamvinnu og málefni þróunarríkja hafi ítrekað verið áréttað í stefnum og áætlunum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands.
„Á það einnig við um núgildandi stefnu (2024-2028), en í henni segir að samstarf við fræðasamfélagið verði eflt, enda gegni það mikilvægu hlutverki þegar kemur að nýsköpun, menntun og rannsóknum og búi að ríkri sérþekkingu sem getur nýst á sviði þróunarsamvinnu.“
Reynsla utanríkisráðuneytisins í gegnum GRÓ þekkingarmiðstöð er sögð staðfesta þau áhrif sem langtímasamstarf á vegum fræðasamfélagsins geti haft, með sterku tengslaneti og uppbyggingu sérþekkingar, bæði á Íslandi og í samstarfslöndum.