Að árinu 2024 frátöldu hefur afgangur af viðskiptajöfnuði Íslands ekki verið meiri á þriðja ársfjórðungi frá árinu 2019, að því er fram kemur í nýrri samantekt Greiningar Íslandsbanka.
Bent er á að afgangur af viðskiptajöfnuði hafi verið 26,9 milljarðar króna á þriðja fjórðungi ársins samkvæmt nýlega birtum tölum Seðlabankans.

„Það er talsvert minni afgangur en þeir 41 ma.kr. sem utanríkisviðskipti skiluðu í afgang á sama tíma fyrir ári,“ segir þar.
Bent er á að þegar hefðu birst tölur frá Hagstofunni um tvo umfangsmestu undirliði viðskiptajafnaðarins, um vöruskiptajöfnuð og jöfnuð þjónustuviðskipta.
„Vöruskiptahalli reyndist tæpir 102 ma.kr. á fjórðungnum og jókst hann um þriðjung á milli ára, ekki síst vegna myndarlegs innflutnings fjárfestingarvara.“
Sömuleiðis er bent áð að líkt og jafnan gerist á þriðja ársfjórðungi þá hafi háönn ferðaþjónustunnar skilað vænum afgangi af þjónustujöfnuði þetta árið.
„Þjónustuafgangurinn nam ríflega 137 ma.kr. samkvæmt tölum Seðlabankans og óx um tæpa 6 ma.kr. milli ára. Raunar dró nokkuð úr afgangi tengdum ferðalögum landa á milli ára, enda var ferðagleði landans mikil síðasta sumar. Á sama tíma jukust tekjur vegna ferðalaga erlends ferðafólks sáralítið þrátt fyrir nokkra fjölgun í heimsóknum erlendra ferðamanna hingað til lands.“
Í greiningunni er jafnframt bent á að gagnaverin sem hér starfa hafi skilað vaxandi útflutningstekjum.
Vísað er til nýrrar og ítarlegrar sundurliðunar Hasgstofunnar, en sé skoðuð þróun á liðnum „Önnur tölvuþjónusta“ þar sem útflutningstekjur innlendra gagnavera eru tíundaðar, sjáist að það sem af er ári séu þjónustutekjur af því tagi ríflega 28 milljarðar króna.
Til samanburðar hafi útflutningstekjur af þessum toga verið rúmir 10 milljarðar króna á fyrstu þremur fjórðungum ársins 2018, en það sé fyrsta árið sem nýja sundurliðunin taki til.
„Útflutningstekjur tengdar gagnaverum og tengdri starfsemi hafa því nærri þrefaldast á sjö árum og voru þær tæp 2% af heildar útflutningstekjum á fyrstu níu mánuðum þessa árs.“

Bent er á að viðskiptahalli á fyrstu þremur fjórðungum ársins hafi alls numið 140 milljörðum króna, sem sé verulegur halli. Til samanburðar hafi hallinn verið 128 milljarðar króna allt síðasta ár.
„Þar sem útlit er fyrir allnokkurn viðskiptahalla á lokafjórðungi ársins virðist ljóst að hallinn í ár verður talsvert meiri en í fyrra. Við spáðum í þjóðhagsspá okkar í september að viðskiptahalli myndi nema tæplega 90 ma.kr. á árinu 2025. Nú virðist sýnt að hallinn verður talsvert meiri í ár. Eftir sem áður er útlit fyrir að hallinn minnki jafnt og þétt á komandi misserum, þótt blikur á lofti í útflutningsgreinum hafi aukið á óvissu um hversu hratt það gerist.“
En þrátt fyrir þennan halla segir í greiningunni að hreinar erlendar eignir þjóðarbúsins séu að aukast.
„Seðlabankinn birti einnig nýverið tölur um erlenda stöðu þjóðarbúsins fram til septemberloka í ár. Reiknast bankanum til að hreina erlenda staðan hafi numið 2.101 ma.kr. á þeim tímapunkti, sem svarar til ríflega 43% af vergri landsframleiðslu (VLF).“
Erlenda staðan er sögð hafa batnað um 252 milljarða króna á fjórðungnum, aðallegavegna lækkunar skulda um 149 milljarða.
„Á sama tíma hækkuðu erlendar eignir um 66 ma.kr. og gengis- og verðbreytingar leiddu til 40 ma.kr. bata í erlendu stöðunni. Erlenda staðan hefur verið jákvæð undanfarinn áratug en hafði fram að því ávallt verið neikvæð, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á gengisstöðugleika krónunnar.“
Greininguna skrifar Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, en hana má nálgast í heild á vef bankans.