Þingmenn heimsóttu öryggissvæðið í Keflavík

Utanríkismálanefnd Alþingis í heimsókn á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Utanríkismálanefnd Alþingis í heimsókn á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Mynd/Landhelgisgæslan

Utanríkismálanefnd Alþingis fékk kynningu á kafbátaeftirliti bandaríska sjóhersins í heimsókn sinni á öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli í vikunni.

Fram kemur í frásögn Landhelgisgæslunnar af heimsókninni að nefndin hafi fengið kynningu á þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fari á öryggissvæðinu.

„Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri varnarmálasviðs, og Marvin Ingólfsson, aðstoðarframkvæmdastjóri varnarmálasviðs, tóku á móti nefndinni ásamt Andra Júlíussyni, og Snorra Matthíassyni frá utanríkisráðuneytinu,“ segir í færslunni.

Fram kemur að meðfylgjandi mynd hafi verið tekin þegar nefndinni var kynnt kafbátaeftirlitið.