Allt að 16.400 íbúðir ekki nýttar til varanlegrar búsetu

Greining HMS á sparnaðargetu heimila bendir til að það geti tekið einstaklinga ellefu ár og einstæða foreldra átján ár að safna fyrir útborgun á lítilli íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar til íbúðakaupa geti hins vegar stytt þann tíma um fjögur ár hjá einstaklingum og tíu ár hjá einstæðum foreldrum.

Hús í Reykjavík.
Mynd/Tom Podmore á Unsplash

Á bilinu 10.500 til 16.400 íbúðir eru ekki nýttar til varanlegrar búsetu hér á landi í október, samkvæmt varfærnu mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

„Tæplega fimm þúsund íbúðir gætu verið vannýttar í Reykjavík, en á Akureyri og í Kópavogi gætu þær verið rúmlega þúsund,“ segir í umfjöllun HMS um nýútkomna mánaðarskýrslu stofnunarinnar.

HMS segir að fasteignamarkaðurinn sé kaupendum í vil þessa stundina, að mati fasteignasala.

„Kaupsamningum hefur ekki fækkað að ráði á höfuðborgarsvæðinu, en nýjum íbúðum á sölu hefur fjölgað hratt á sama tíma og sala þeirra hefur verið dræm. Birgðatími íbúða í nágrenni höfuðborgarsvæðisins hefur ekki mælst lengri frá því að mælingar hófust árið 2018.“

Þá segir að leigumarkaðurinn sé stærri en fyrri búsetukannanir HMS hafi gefið til kynna, þar sem illa hafu gengið að ná til aðfluttra íbúa.

„Niðurstöður nýrrar könnunar á vegum HMS og stéttarfélaganna Eflingar, VR og Einingar-Iðju benda til þess að um 28% fullorðinna einstaklinga séu á leigumarkaði hér á landi, en ekki 15% eins og áður var talið.“

Leigusamningum í nýjum íbúðum hafi ekki fjölgað á síðustu mánuðum, þrátt fyrir umfjöllun um að byggingaraðilar hafi tekið nýjar íbúðir af sölu og sett á leigumarkað. Það sem af er ári eru um 8,5 prósent nýskráðra leigusamninga sagðir hafa verið um íbúðir í nýbyggingum.

Lengri tíma tek­ur að safna fyr­ir út­borg­un

„Á lánamarkaði var hrein ný lántaka heimila minni að umfangi í ágúst heldur en í júlí, sem var mesti útlánamánuðurinn í fjögur ár. Ásókn í óverðtryggð lán hefur aukist og voru slík lán með föstum vöxtum álíka vinsæl og verðtryggð lán með föstum vöxtum á fyrri hluta þessa árs,“ segir í samantekt HMS.

HMS segir greiningu sína á sparnaðargetu heimila benda til þess að það geti tekið einstaklinga ellefu ár og einstæða foreldra átján ár að safna fyrir útborgun á lítilli íbúð á höfuðborgarsvæðinu.

„Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar til íbúðakaupa getur hins vegar stytt sparnaðartímann um 4 ár hjá einstaklingum og 10 ár hjá einstæðum foreldrum.“

Ný mann­fjölda­spá dreg­ur úr íbúða­þörf

HMS bendir líka á að íbúðum í byggingu hafi fjölgað, sér í lagi íbúðum sem taldar séu fullbúnar en hafi ekki enn verið teknar í notkun.

„Búist er við að rúmlega þrjú þúsund íbúðir verði fullbúnar á landinu í ár, en greining HMS á íbúðaþörf sem byggir á nýrri mannfjöldaspá Hagstofu bendir til þess að byggja þurfi um fjögur þúsund íbúðir á hverju ári til ársins 2050.“