Heildareignir einstaklinga á Íslandi árið 2024 námu 12.714 milljörðum króna samkvæmt nýrri samantekt Hagstofu Íslands. Aukning milli ára, sem búið er að leiðrétta miðað við ársmeðaltal vísitölu neysluverðs í fyrra, var 0,7 prósent.
Fram kemur að hlutur fasteigna í heildareignum einstaklinga hafi verið 9.897 milljarðar króna og hafi hækkað að nafnverði um 5,1 prósent á milli ára.
„Heildarskuldir voru 3.252 milljarða króna árið 2024 en árið 2023 voru skuldir 3.057 milljarðar króna. Er þetta aukning um 6,4 prósent en raunlækkun er um 0,7 prósent sé verðlagsleiðrétt.“
Hagstofan segir meðaltal eigna hafa verið 55,5 milljónir króna á framteljanda og miðgildi 28,1 milljón. Meðalskuldir hafi verið 14,2 milljónir króna og miðgildi verið 1,1 milljón.
„Eigið fé jókst úr 8.868 milljörðum í 9.461 milljarð á milli áranna 2023 og 2024 en aukning skýrist að mestu leyti af hækkun eigna umfram skulda.“
Fram kemur að til eigna teljist allar eigur fjölskyldu, þar með taldar fasteignir, ökutæki, innstæður í bönkum og verðbréf. Verðmæti fasteigna miðist við fasteignamat og hlutabréf séu skráð á nafnvirði.