Síminn hafði betur í máli gegn Samkeppniseftirlitinu

Landsréttur sneri með dómi sínum í máli Símans gegn Samkeppniseftirlitinu við fyrri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Síminn í Ármúla í Reykjavík.
Skrifstofur Símans í Ármúla í Reykjavík. Mynd/Google Earth

Landsréttur hefur fallist á kröfu Símans um viðurkenningu á að skilyrði í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SKE) og varða sátt sem Síminn gerði við eftirlitið 2015 væru fallin úr gildi. Samkeppniseftirlitið gerir grein fyrir dómi Landsréttar á vef sínum og segist hafa til athugunar hvernig brugðist verði við dómnum.

SKE fer yfir að um hafi verið að ræða skilyrði sem byggt hafi á sátt sem Síminn (þá Skipti) gerði við eftirlitið á árinu 2013 um lok sjö mála. Í málunum hafi verið til rannsóknar var hvort fyrirtækið hefði brotið gegn bannreglum samkeppnislaga og sátt sem það hafði gert við samkeppnisyfirvöld. Á árinu 2015 hafi skilyrðin verið endurskoðuð að beiðni Símans.

„Skilyrðin, sem fyrirtæki hafði skuldbundið sig til að fylgja í því skyni að efla samkeppni á fjarskiptamörkuðum, voru ótímabundin en samkvæmt sáttinni var Símanum heimilt að óska eftir því að einstök skilyrði hennar yrðu felld úr gildi ef aðstæður breyttust verulega á fjarskipta­mörkuðum,“ segir á vef SKE.

Þá hafi afstaða eftirlitsins til slíks erindis átt liggja fyrir innan ákveðinna tímamarka, en ella teldist erindið samþykkt og viðkomandi skilyrði fallið úr gildi.

Er svo vísað til þess að með ákvörðun árið 2023 hafi SKE komist að þeirri niðurstöðu að ekki væru forsendur til að verða við kröfu Símans um að fella niður öll skilyrði sem fyrirtækið hafði áður skuldbundið sig til að fylgja í því skyni að efla samkeppni á fjarskiptamörkuðum.

Síminn hafi ekki viljað ekki una þeirri ákvörðun og því höfðað vegna mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og krafist þess meðal annars að viðurkennt yrði að skilyrði ákvörðunar eftirlitsins frá 2015 væru úr fallin gildi.

„Byggði Síminn meðal annars á því að tímafrestir eftirlitsins til að taka afstöðu til erindis hans hefðu verið liðnir þegar eftirlitið tók ákvörðun í málinu. Á það féllst héraðsdómur ekki og sýknaði eftirlitið af kröfu Símans. Landsréttur hefur nú komist að öndverðri niðurstöðu,“ segir SKE.

Dóm Landsréttar má finna HÉR.