Öryggismál vega þyngst hjá dómsmálaráðuneytinu

Í fjárlögum er gert ráð fyrir rúmlega 30 prósenta lækkun á útgjöldum vegna útlendingamála. Fjárveitingar í málaflokknum verða 6,5 milljarðar króna árið 2026, samanborið við 9,5 milljarða króna á árinu 2025.

Mynd/ÓKÁ

Fjárveitingar til öryggismála hjá dómsmálaráðuneyti í fjárlögum næsta árs nema rúmum 50 milljörðum króna, að því er fram kemur í samantekt ráðuneytisins. Undir öryggismál falla lögregla, Landhelgisgæsla, ákæruvald og fangelsismál.

Fjárveitingar vegna öryggismála nema um 68 prósentum af heildarfjárveitingum til ráðuneytisins. Í frétt ráðuneytisins kemur fram að um sé að ræða 12,7 prósenta hækkun frá fjárlögum ársins 2025.

„Dómsmálaráðherra leggur skýra áherslu á öryggi og einföldun með fjárlögum ársins 2026. Heildarfjárframlög sem heyra undir ráðuneytið nema rúmum 73 milljörðum króna, eða um 4,5% af áætluðum útgjöldum ríkissjóðs,“ segir þar.

Haft er eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að öryggi landsmanna sé forgangsmál og að borgaralegir innviðir séu fremsta lína varna.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. Mynd/dómsmálaráðuneytið

„Lögregla, Landhelgisgæsla og almannavarnir tryggja öryggi þjóðarinnar á hverjum degi og við ætlum að styrkja þessa innviði,“ segir hún.

Fram kemur að í fjárlögum sé gert ráð fyrir rúmlega 30 prósenta lækkun á útgjöldum vegna útlendingamála. Fjárveitingar í málaflokknum verði 6,5 milljarðar árið 2026, samanborið við 9,5 milljarða á árinu 2025.

„Við erum að stíga stór skref til að ná útgjöldum niður. Nú er gert ráð fyrir 6,5 milljörðum árið 2026 í þessum málaflokki sem er 30% lækkun frá fjárlögum 2025, og næstum 60% lækkun frá raunkostnaði síðasta árs. Þetta gerist ekki að sjálfu sér, þetta gerist með skýrri stefnu og með því að hafa stjórn á aðstæðum,“ segir ráðherra.

Dómsmálaráðherra segir ráðgert að leggja fram fimm frumvörp í málaflokknum, meðal annars um hert skilyrði vegna umsókna um dvalarleyfi, ásamt frumvarpi sem geri stjórnvöldum kleift að afturkalla alþjóðlega vernd þeirra sem framið hafa alvarleg eða ítrekuð brotog þeirra sem taldir eru ógna öryggi ríkisins. 

Meiri peningar í Landhelgisgæslu og fangelsismál

Í frétt ráðuneytisins kemur fram að meðal helstu verkefna framundan sé fjölgun lögreglumanna um 50 og stofnun brottfararstöðvar sem verði notuð sem lokaúrræði þegar brottvísa eigi ósamvinnuþýðum útlendingum.

Þá sé gert ráð fyrir viðbótarfjárframlagi til Fangelsismálastofnunar upp á 230 milljónir króna, meðal annars til að tryggja aukið öryggi starfsfólks og fanga.

„Það er alveg skýrt að refsidómar mega ekki fyrnast. Það grefur undan trausti almennings á réttarkerfinu. Þess vegna er forgangsmál að nýta öll tiltæk úrræði til að létta á fangelsum landsins. Brottfararstöðin er liður í því,“ segir ráðherra.

Þá er fjárheimild til reksturs Landhelgisgæslunnar aukin um 1,3 milljarða með það að markmiði að „tryggja öryggi og eftirlit í auðlindalögsögu Íslands og styrkja með því áfallaþol þjóðarinnar“.

Á sama tíma segir ráðuneytið að tekin séu skref til einföldunar og hagræðingar.

„Dómstólar eru áfram undanskildir almennu aðhaldi og vinna heldur áfram að uppbyggingu réttarvörslugáttar sem m.a. hefur bætt þjónustu við þolendur. Þá verða gerðar breytingar á jafnlaunakerfi þannig að skylda til jafnlaunavottunar verður aflögð í núverandi mynd og einfaldara kerfi tekur við. Sama markmið um launajafnrétti verður tryggt, en með minni kostnaði fyrir bæði atvinnulíf og hið opinbera.“

Nánari upplýsingar um fjárlög fyrir árið 2026 er að finna hér.