Aköst í leyfisveitingum jukust um 58 prósent eftir sameiningu

Þó að afköst hafi aukist áréttar Umhverfis- og orkustofnun að afgreiðsla jafngildi ekki samþykki. Afgreiðsla umsókna geti falið í sér synjun.

Akstur á Hellisheiði.
Mynd/ÓKÁ

Á fyrri helming þessa árs hefur Umhverfis- og orkustofnun gefið út 34 leyfi, sem er 58% aukning í afköstum frá fyrra ári. Árangrinum var náð án þess að starfsfólki væri fjölgað, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar.

Skýringin er sögð felast í að við sameiningu Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar um síðustu áramót hafi nýtt leyfateymi tekið við flestum helstu leyfisveitingum í atvinnulífinu. Og að þrátt fyrir umrót við sameiningu stofnananna hafi teyminu tekist að ná fram svo góðum árangri á fyrsta starfsárinu.  

Árangurinn skýrist af tvennu, að sögn Umhverfis- og orkustofnunar. Annars vegar sé teymið sterkara því eitt sameinað þrettán manna teymi geti brugðist við hratt þar sem við þar sem þörfin sé mest.

Hins vegar sé boðleiðir nú styttri. Einfaldari mál fari nú hraðar í gegnum teymið, á meðan stærri og flóknari mál séu tekin fyrir af forstjóra. 

„Að auki hefur verið lögð áhersla á gæðamál í nýju stofnuninni. Það hafa verið gerðir nýir verkferlar, eldri verkferlar hafa verið uppfærðir og starfsfólk nýtir nýja gátlista til að flýta fyrir afgreiðslu leyfa,“ segir á vef stofnunarinnar.

Þá segir Sverrir Aðalsteinn Jónsson, teymisstjóri í teymi leyfa og umsagna, að þegar sjáist mikil samlegð og mun skilvirkara ferli.

„En við vitum líka að fram undan er mikil vinna við að vinna niður eldri biðlista,“ segir hann.

Fjölbreytt verkefni

Fram kemur að teymi leyfa og umsagna sinni fjölbreyttum verkefnum. Teymið veiti meðal annars: 

  • Leyfi fyrir notkun á erfðabreyttum lífverum 
  • Nýtingarleyfi (fyrir jarðhita, grunnvatni og jarðefnum) 
  • Rannsóknarleyfi (fyrir jarðhita, grunnvatni og jarðefnum) 
  • Starfsleyfi 
  • Virkjunarleyfi 

Þá gefi teymið einnig út út bráðabirgðaheimildir og skrifi lögbundnar umsagnir við mat á umhverfisáhrifum og við gerð skipulagstillagna. Oft sé leitað til Umhverfis- og orkustofnunar eftir umsögnum um fjölbreytt umhverfismál og þar leiki teymið stórt hlutverk.  

Afgreiðsla ekki sama og leyfisveiting 

Sérstaklega er tekið fram í umfjöllun Umhverfis- og orkustofnunar að aukin afköst í leyfisveitingum þýði ekki að slakað hafi verið á kröfum sem gerðar séu til fyrirtækja sem sæki um leyfi. Þvert á móti sé betur hægt að tryggja gæði og vönduð vinnubrögð með skilvirkara ferli.

„Teymi leyfa og umsagna afgreiðir leyfisumsóknir frá atvinnulífinu og í sumum tilfellum er leyfisumsóknum hafnað.“