Skoðun

Óli Kristján Ármannsson
Óli Kristján Ármannsson

Hver telur blómin sem verða aldrei til?

Já, hver telur blómin sem verða aldrei til? Svarið er enginn, því það er ekki nokkur leið að telja eitthvað sem ekki er til.

Á tíma gjaldeyrishaftanna eftir var stundum vísað til þessara sanninda til marks um ósýnilegan kostnað haftanna. Umhverfið, þó að á yfirborðinu bjátaði ekkert á og lífið gengi meira og minna sinn vanagang, þá væri efnahagsumhverfið hamlandi og fældi frá fjárfesta. Með því ættu góðar hugmyndir þeim mun erfiðara með að blómstra. Það væri voðafínt að hampa sér á Össuri og Marel sem hér hafi orðið til og vaxið í risafyrirtæki, en í haftaumhverfi væri slíkur vöxtur útilokaður.

Og á meðan höftin voru múr þá var og er krónan náttúrlega þröskuldur sem margur fjárfestirinn setur fyrir sig, svona fyrir utan kostnaðinn sem af henni hlýst við að halda úti gríðarstórum gjaldeyrisvarasjóði, vöxtunum sem þarf til að styðja krónuna og kostnaðinn sem almenningur af því ber.

En blómalíkingin á víðar við, svo sem um íslenskan orkumarkað. Það saknar enginn orkuskiptafyrirtækis sem aldrei fékk að hefja göngu sína af því hér var ekki hægt að verða því úti um rafmagn til starfseminnar. Og það þótt slíkt fyrirtæki félli vel að markaðri stefnu um framleiðslu orku innanlands. Núna er þó vonarglæta í þeim efnum og hreyfing loksins að komast á orkuframleiðslu.

Vitað mál er að til framleiðslu á vetni innanlands, undirstöðu jarðefnalausrar eldsneytisframleiðslu fyrir bíla, skip og flugvélar, þarf óheyrilegt magn raforku. Líklega myndu orkuskipti millilandaflugvéla einna saman fara langt með allar vatnsaflsvirkjanir landsins og því vitað mál að önnur orkuframleiðsla þarf að koma til. Nærtækast er að horfa til vindmylla, en sjálfsagt að skoða líka aðrar lausnir, sjávarfallavirkjanir, sólarorku eða hvað eina annað. Bara að komist verði af stað. Annars má kyssa bless blómin sem hefðu orðið grundvöllur orkuskiptanna og þjóðhagslegs ávinnings sem af því hlytist að geta að mestu hætt að flytja inn eldsneyti.

Reyndar þarf líka að huga að framkvæmdinni. Ef framleiðslan á að bera sig án þess að óheyrilegur kostnaður falli á kaupendur eldsneytisins þarf að horfa til stærðarhagkvæmni í framkvæmdinni. Þá þarf að horfa til framleiðslu sem ekki myndi eingöngu nýtast innanlands og fá fleiri að borðinu en Landsvirkjun eina — jafnvel erlend fyrirtæki.

Þar sem hagsmunir fara saman er alþjóðleg samvinna góð og allt að vinna fyrir lítið ríki á borð við Ísland. En í sjálfskaparvíti hafta, þröskulda og ótta við útlendinga, verður minna um framþróun og árangur. Það sést bara illa þegar blómin fá ekki jarðveg að spretta úr.

Höfundur er blaðamaður og ráðgjafi í almannatengslum.