Helgi Einar Karlsson ræðst til LOGOS endurskoðunar

Helgi Einar Karlsson
Helgi Einar Karlsson

Helgi Einar Karlsson hefur gengið til liðs við LOGOS endurskoðun og ráðgjöf og kemur inn í eigendahóp félagsins. Helgi kemur frá Deloitte, þar sem hann starfaði í 16 ár við endurskoðun og ráðgjöf, þar af sem yfirmaður reikningsskila frá árinu 2019.

Fram kemur í tilkynningu frá LOGOS endurskoðun og ráðgjöf að Helgi sé löggiltur endurskoðandi með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Hann hafi um árabil verið meðal leiðandi sérfræðinga landsins á sviði reikningsskila og leitt hjá Deloitte fjölbreytt verkefni tengd reikningsskilum, innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS), skattaráðgjöf, áreiðanleikakönnunum, kaupverðsútdeilingum og annarri sérhæfðri fjármálaráðgjöf.

Á starfsferli sínum hefur Helgi veitt fjölmörgum fyrirtækjum ráðgjöf, einkum stærri félögum í íslensku atvinnulífi. Sú reynsla er sögð falla vel að áherslu LOGOS endurskoðunar og ráðgjafar á að byggja upp þjónustu við stærri og skráð félög sem þurfa á sérhæfðri ráðgjöf að halda.

Þá hefur Helgi lagt sitt af mörkum til þróunar fagsins með þátttöku í reikningsskilanefnd Félags löggiltra endurskoðenda og tekið þátt í prófhaldi og prófnefndarstörfum fyrir Endurskoðendaráð vegna löggildingarprófa í endurskoðun, auk kennslu á háskólastigi.

Haft er eftir Þorsteini Guðjónssyni, framkvæmdastjóra LOGOS endurskoðunar og ráðgjafar, að þau séu afar ánægð með að fá Helga til liðs við sig. „Hann býr yfir einstakri reynslu og sérþekkingu á reikningsskilum og fjármálatengdri ráðgjöf sem mun styrkja þjónustuframboð okkar enn frekar. Sérfræðiþekking Helga og reynsla af ráðgjöf við stór og meðalstór fyrirtæki fellur afar vel að stefnu félagsins um að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og stuðning í sífellt flóknara rekstrarumhverfi. Við hlökkum til að njóta krafta hans við áframhaldandi uppbyggingu félagsins,“ segir hann.