Bryndís Thelma Jónasdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Ölgerðinni sem nýr vörumerkjastjóri Pepsi á Íslandi.
Í tilkynningu Ölgerðarinnar kemur fram að Bryndís Thelma hafi undanfarin níu ár verið við nám og störf í Kaupmannahöfn og sé með B.Sc. gráðu í International Sales and Marketing Management frá Copenhagen Business School.
„Síðustu fjögur ár hefur hún starfað hjá CO/PLUS Strategic Business Consultancy og öðlaðist þar mikla reynslu af alþjóðlegum verkefnum á sviði stefnumótunar og viðskiptaþróunar.“
Sem vörumerkjastjóri Pepsi komi Bryndís til með að leiða vinnu við vörumerki Pepsi á Íslandi, þar á meðal Pepsi Max, Pepsi Upprunalega bragðið og 7UP.