Stofnað hefur verið nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS, LOGOS endurskoðun & ráðgjöf ehf. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Deloitte, verður forstjóri og leiðir uppbyggingu félagsins.
Fram kemur í tilkynningu að sérstaða LOGOS endurskoðunar og ráðgjafar verði heildstæð ráðgjöf til fyrirtækja með áherslu á aðstoð í tengslum við reikningsskil, fyrirtækjakaup og samruna, áreiðanleikakannanir og verðmat fyrirtækja, auk þess sem boðið verður upp á endurskoðun.
„Fyrst í stað verður lögð áhersla á endurskoðun og ráðgjöf til minni og meðalstórra félaga, en einnig horft til stærri fyrirtækja og skráðra félaga sem kunna að þurfa sérhæfða ráðgjöf,“ segir þar.
Þorsteinn er sagður búa að yfirgripsmikilli reynslu af endurskoðun og ráðgjöf og þekkja þarfir atvinnulífsins vel.
„Áhersla verður lögð á að byggja upp öflugt teymi sem sameini reynslumikla sérfræðinga og metnaðarfulla einstaklinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi endurskoðunar og ráðgjafar. Byggt verður á áratuga reynslu, gæðum, orðspori og tengingu við atvinnulífið sem mótast hefur í störfum bæði lögmanna LOGOS og Þorsteins.“
Í tilkynningunni segir Elvar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Logos, að þar á bæ hafi fólki strax orðið ljóst að með því að sameina krafta mætti bjóða heildstæða og sérhæfðari þjónustu.
„LOGOS veitir víðtæka ráðgjöf á sviðum sem tengjast sérfræðiráðgjöf endurskoðenda, svo sem við kaup og sölu fyrirtækja, fjárhagslega endurskipulagningu, áreiðanleikakannanir, samrunamál og skattaráðgjöf. Það er mikill fengur fyrir LOGOS að fá Þorstein til liðs við þetta nýja fyrirtæki sem verður í ákveðinni sérstöðu á markaðnum,“ segir Jón Elvar.
Þá er haft eftir Þorsteini Pétri að hann sjái mikil tækifæri í ráðgjöf þar sem fyrirtækin í landinu leiti stöðugt að aukinni og betri þjónustu.
„Segja má að við höfum séð sóknarfæri í nýrri nálgun og uppsetningu á endurskoðunarþjónustu með áherslu á ráðgjöf. Núna tekur við snarpt uppbyggingarstarf og þar er mikill styrkur í því að vera í samstarfi við LOGOS. Með því má segja að við getum byrjað hlaupandi og ætlum strax að láta til okkar taka,“ segir hann.
Fram kemur að Þorsteinn hafi starfað hjá Deloitte í 26 ár, þar af sem forstjóri frá 2019 og í eigendahópi frá 2008.
Þá segir að við uppbyggingu starfseminnar verði jafnt horft til innri og ytri vaxtar.