Skýrsla hugveitunnar Evrópustrauma fyrir Félag atvinnurekenda (FA) og Íslensk-evrópska verslunarráðið um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja kom út í dag. Efni hennar var kynnt á opnum fundi FA í morgun.
Í ávarpi Friðriks Inga Friðrikssonar, formanns FA, áréttaði hann að félagið tæki enga afstöðu til þess hvort Ísland ætti að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið eða ekki.
„Við erum ekki hér í dag til að færa rök fyrir já-i eða nei-i. Við erum hér til að leggja fram staðreyndir,“ sagði hann.
Friðrik Ingi benti á að til þess að fólk gæti tekið afstöðu til spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka bæri upp á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, þá væri óhjákvæmilegt að umræðan snerist um Evrópusambandið sjálft.
„Hvað myndi möguleg aðild þýða? Hvaða áhrif hefði hún á atvinnulíf, rekstrarumhverfi, utanríkisviðskipti, tolla, gjaldmiðilsmál og samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja? Og hvaða atriði liggja þegar fyrir, óháð því hvaða skoðun menn hafa á málinu?“ sagði hann.
Tilgangur skýrslunnar væri að svara þessum spurningum.
Á fundinum fór Hallgrímur Oddsson, höfundur skýrslunnar, yfir helstu niðurstöður skýrslunnar, en á vef FA má einnig sækja glærurnar sem hann studdist við í kynningunni.
Hér á eftir fara einnig þær meginniðurstöður skýrslunnar sem teknar eru saman í punktaformi á vef FA:
Tollabandalag ESB og staða Íslands
• Ein veigamesta breytingin fyrir utanríkisverslun Íslands við inngöngu í ESB yrði með aðild að tollabandalagi sambandsins. Innflutningur búvara frá ríkjum ESB myndi opnast og ytri tollskrá gagnvart þriðju ríkjum myndi hækka fyrir fjölda vöruflokka.
• Innflutningstollar á Íslandi eru í dag engir fyrir flesta vöruflokka, að búvörum undanskildum sem njóta hærri verndartolla en landbúnaður í ESB. Vernd íslenskra búvara er ein sú mesta í heimi samkvæmt mælingum OECD og matvælaverð á Íslandi er 36% hærra en meðaltal sex dýrustu ríkja ESB.
• Kostnaður vegna tollskýrslugerðar og umsýslu myndi lækka við inngöngu í ESB fyrir utanríkisviðskipti við önnur aðildarríki.
• Staða Íslands og hinna EES-EFTA ríkjanna á innri markaði ESB en utan tollabandalagsins er sérstök og að mörgu leyti öfundsverð. Fyrirkomulagið hefur veitt Íslandi sjálfstæði í tollamálum og við gerð fríverslunarsamninga.
• Iðnaðarvörur og stór hluti sjávarfangs njóta þegar tollfrelsis til ESB. Aðild að ESB myndi því ekki umbylta vöruviðskiptum við aðildarríkin.
• Fríverslunarnet ESB er stærra en fríverslunarnet EFTA og skarast þau að mestu. Stærsta undantekningin er fríverslunarsamningur Íslands við Kína. Viðskipti milli Íslands og Kína hafa aukist verulega á síðastliðnum áratug og hefur bæði inn- og útflutningur margfaldast.
• Netverslun er aðgengilegri neytendum innan ESB en á Íslandi. Með einfaldara uppgjöri virðisaukaskatts og afnámi tollafgreiðslu yrði netverslun frá ríkjum ESB enn samkeppnishæfari á Íslandi við aðild.
Gjaldmiðlamál
• Íslenska krónan hefur reynst sveiflujafnari í efnahagsáföllum, líkt og í fjármálahruninu 2008, og áföll koma fremur fram í formi verðbólgu en auknu atvinnuleysi eins og í evruríkjum. Verðstöðugleiki á Íslandi er aftur á móti mun minni en í evrulöndum, verðbólga er viðvarandi, vaxtastig hátt í samanburði og verðtrygging á lánum og gjöldum er kerfislæg.
• Ef litið er til helstu gengiskrossa þá hefur íslenska krónan sveiflast innan eðlilegra marka á sl. árum. En vegna viðvarandi verðbólgu hefur krónan reynst lélegt tæki til að varðveita verðmæti og víðtæk notkun verðtryggingar hefur búið til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar verðbólgu.
• Peningastefna ein leysir ekki verðbólguvanda, þar sem hið opinbera, aðilar á vinnumarkaði og Seðlabanki Íslands leggja öll til verðlagsþróunar. Bein áhrif gjaldmiðils til verðstöðugleika eru helst í gegnum innflutningsverð. Óbein áhrif birtast þó í freistingu aðila til að hækka laun og haga hagstjórn úr takti við framleiðni þar sem afleiðingarnar eru helst til hækkunar verðlags en minni
á atvinnuþátttöku og atvinnuleysi.
• Ísland uppfyllir í dag þrjú af fimm Maastricht-skilyrðum fyrir upptöku evru. Frá aldamótum hefur Ísland sjaldnast uppfyllt skilyrði um verðbólgu og vexti.
• Það hefur tekið ný aðildarríki ESB þrjú til nítján ár að taka upp evru frá inngöngu.
• Áhrifin af upptöku evru kæmu fram í lægra vaxtastigi og minni gengisáhættu. Vextir á nýjum lánum til fyrirtækja eru 3,2–5,6% í ríkjum ESB en yfir 10% á Íslandi. Á sl. 10 árum hafa vextir á fyrirtækjalánum verið 3–6% hærri á Íslandi en á evrusvæðinu.
• Að öðru óbreyttu myndi lægra vaxtastig hafa áhrif á íslenska eignamarkaði til hækkunar.
Pólitískir straumar og EES-samningurinn
• Breytt stefna Bandaríkjaforseta, aukin samkeppni frá Kína og innrás Rússlands í Úkraínu hafa breytt landslagi alþjóðaviðskipta. Viðbrögð ESB birtast í markmiðum um að auka samkeppnishæfni með einföldun regluverks og auknu sjálfræði evrópsks iðnaðar.
• Áherslubreytingar ESB eru til staðfestingar á ytri ógnum Evrópu og viðurkenning á veikleikum sambandsins og gangverkum þess.
• Boðaðar lagabreytingar ESB til að efla framkvæmd innri markaðarins varða Ísland í gegnum EESsamninginn, m.a. tillögur um frekari einföldun regluverks og sérstakar aðgerðir til verndar eigin iðnaði.
• Fyrir árslok 2027 vill framkvæmdastjórn ESB innleiða áætlun sína um „eina Evrópu, einn markað“, virkja sérstakan iðnaðarhraðal til að efla mikilvægan evrópskan iðnað, afnema hindranir á innri markaðinum og koma á fót fjárfestinga- og sparnaðarbandalagi.
• EES-samningurinn hefur verið Íslandi ábatasamur og ávinningur vegna tollfríðinda er metinn á um 26,6 milljarða króna árið 2024.
• Innbyggður innleiðingarhalli í EES-samningnum og hæg innleiðing geta haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfni Íslands, sérstaklega þegar tafir eru á ívilnandi EES-gerðum.
• Geópólitískar sviptingar hafa áhrif á samskipti EES-EFTA ríkjanna og ESB, eins og sást þegar verndaraðgerðir ESB fyrir kísiljárn náðu til Íslands og Noregs. Pólitískt samband er þó traust og hagur ríkjanna að svo verði áfram.