Ljósleiðarinn hefur ráðið Ástu Ólafsdóttur forstöðukonu sölu og þjónustu og Sigurð Pétur Oddsson sem leiðtoga sölu og viðskiptaþróunar.
Fram kemur í tilkynningu að Ásta hafi tekið við starfi forstöðukonu sölu og þjónustu, en hún hafi víðtæka reynslu af stjórnun, sölu og þjónustu.
„Undanfarin ár hef hún starfað hjá Origo, fyrst sem þjónustustjóri í skýja- og netrekstri og síðar sem forstöðukona rekstrarþjónustu. Þar leiddi Ásta öflug teymi með áherslu á framúrskarandi þjónustu, öruggan rekstur í hröðu tækniumhverfi og sterkt samstarf við viðskiptavini,“ segir í tilkynningu Ljósleiðarans.
Áður hafi Ásta starfað hjá Nova í um níu ár þar sem hún hafi gegnt fjölbreyttum stjórnunarhlutverkum og meðal annars leitt sölu- og þjónustu á bæði einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.
„Í gegnum feril sinn hefur hún lagt ríka áherslu á að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini, byggja upp árangursrík teymi og stuðla að stöðugum umbótum.“
Þá hafi Sigurður Pétur jafnframt hafið störf sem leiðtogi sölu og viðskiptaþróunar.
„Sigurður er með víðtæka reynslu af viðskiptaþróun, nýsköpun og þróun þjónustu- og tæknilausna. Hann kemur til Ljósleiðarans frá Isavia þar sem hann starfaði síðast við viðskiptaþróun með áherslu á upplifun farþega, stafræna þróun og umbætur í rekstri.“
Áður hafi hann gegnt þróunarhlutverkum hjá Sýn og Þekkingu með áherslu á viðskiptaþróun, þróun nýrra vara og þjónustu, auk umbreytingarverkefna.
„Hann er með meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst og BS-gráðu í viðskiptafræði.“
Haft er eftir Þuríði Björgu Guðnadóttur, framkvæmdastýru Ljósleiðarans, að mikið fagnaðarefni sé að fá Ástu og Sigurð í hópinn.
„Þau búa yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu sem mun nýtast okkur vel í áframhaldandi uppbyggingu Ljósleiðarans. Ég hlakka til að vinna með þeim að því að skapa enn meira virði fyrir viðskiptavini okkar og samfélagið allt,“ segir hún.