Milljarðs hagnaður í samræmi við áætlanir

Mynd/EFLA

Tekjur verkfræði- og ráðgjafarfyrirtækisins EFLU jukust um sjö prósent milli ára og námu 13,1 milljarði króna, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins um árseikning þess 2025.

„Rekstrarkostnaður lækkaði lítillega milli ára og var EBITDA félagsins 10%. Þá var hagnaður ársins í samræmi við áætlanir, eða 1,1 milljarður króna.“

Bent er á að rekstrartekjur hafi aukist, rekstrarkostnaður lækkað og hagnaður verið í samræmi við áætlanir.

„Samkvæmt ársreikningi fyrirtækisins gekk rekstur ársins 2025 vel hjá EFLU og erlendum dótturfélögum félagsins.“

Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU. Mynd/EFLA

Haft er eftir Kristínu Friðgeirsdóttur, framkvæmdastjóra EFLU, að reksturinn hafi verið á pari við metnaðarfullar áætlanir.

„Talsverður tekjuvöxtur og góð afkoma var af rekstri erlendra dótturfélaga EFLU og var umfang þeirra um fjórðungur af starfsemi félagsins. Þrátt fyrir talsverða óvissu og neikvæðar fréttir úr efnahagsumhverfinu, skilum við góðri afkomu og styrkjum grunnstoðir EFLU til enn frekari sóknar,“ segir hún.

Heildareignir EFLU í árslok 2025 eru sagðar hafa numið 5,4 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall 54,5 prósent. Þá hafi starfsmönnum fjölgað á árinu og verið 548 í 518 stöðugildum í árslok.

„EFLA er í eigu 199 starfsmanna félagsins.“