Lyfja og Einar Birgir Haraldsson, eigandi Borgar Apóteks, hafa komist að samkomulagi um að falla frá fyrirhuguðum kaupum Lyfju á Borgar Apóteki í Borgartúni.
Fram kemur í tilkynningu Lyfju að samrunatilkynning sem verið hafi til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu hafi því verið afturkölluð.
Lyfja tilkynnti um fyrirhuguð kaup til Samkeppniseftirlitsins í apríl síðastliðnum að undangengnum forviðræðum við eftirlitið. Málið hefur síðan verið til rannsóknar hjá eftirlitinu.
„Í samskiptum við samrunaaðila kynnti Samkeppniseftirlitið frummat sitt á mögulegum samkeppnislegum áhrifum samrunans og um þörf á frekari rannsókn af þeim sökum. Í ljósi þess hafa aðilar komist að samkomulagi um að ljúka málinu án frekari aðgerða,“ segir í tilkynningunni.
Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju., segir þar líka að hjá fyrirtækinu hafi staðið til þess vonir að kaupin gætu skapað tækifæri fyrir fyrirtækin.
„Í ljósi frummats Samkeppniseftirlitsins um möguleg samkeppnisleg áhrif samrunans var það sameiginlegt mat aðila að rétt væri að leiðir skildu þannig að fallið yrði frá kaupunum og samrunatilkynning afturkölluð,“ segir hún.
Það sé miður að kaupin gangi ekki eftir en Lyfja þakki Einari Birgi og öðrum sem komið hafi að málinu fyrir faglegt ferli.
Þá er haft eftir Einari Birgi Haraldssyni, lyfsala og eiganda Borgar Apóteks, að hann hefði kosið að sjá viðskiptin ganga eftir og þyki miður að þau skuli ekki verða að veruleika.
„Ég vil þó þakka Lyfju fyrir gott samstarf í ferlinu. Borgar Apótek mun áfram starfa undir núverandi eignarhaldi og þjónusta viðskiptavini sína sem fyrr í gegnum apótekið og lyfjaskömmtun,” segir hann.