Ný verslun ELKO opnar við Garðinn í Smáralind

Ný verslun ELKO í Smáralind.
Ný verslun ELKO í Smáralind. Mynd/ÓKÁ

Raftækjaverslunin ELKO hefur opnað nýja búð með áherslu á smærri raftæki í Smáralind í Kópavogi. Verslunin er sú sjönda sem ELKO starfrækir, en einnig eru reknar verslanir í Lindum, Skeifunni, Granda, Akureyri og á Keflavíkurflugvelli, auk vefverslunar.

Fram kemur í tilkynningu að nýja búðin sé um 200 fermetrar að stærð og þar af sjálft verslunarrýmið um 170 fermetrar, en hún sé við hlið Garðsins mathallar í austurenda Smáralindar á annarri hæð.

Borðaklipping í undirbúningi rétt fyrir opnun klukkan ellefu 3. júní 2026.
Borðaklipping í undirbúningi rétt fyrir opnun klukkan ellefu 3. júní 2026. Mynd/ÓKÁ

„Ný verslun ELKO í Smáralind er með sama útliti og hönnun og aðrar verslanir fyrirtækisins þó vöruúrval á staðnum sé með öðrum hætti en í þeim stærri,“ segir í tilkynningunni.

Þá sé opnunartími sá sami og í öðrum verslunum ELKO og hægt að sækja pantanir úr vefverslun í Smáralind ásamt því að koma með gamla farsíma og selja í verkefnið „fáðu eitthvað fyrir ekkert“.  

Vöruúrval í nýju búðinni sé sambærilegt við það sem fólk þekki úr verslunum ELKO á Keflavíkurflugvelli, með áherslu á síma, spjaldtölvur, snjallúr, skjáfilmur og smærri heimilistæki, auk snyrti- og heilsuvara.

„Það finnst kannski einhverjum undarlegt að við opnum verslun svo nærri okkar stærstu búð, en með þessu aukum við þjónustu við viðskiptavini Smáralindar og spörum þeim sporin sem eru í leit að smærra raftæki eða vilja njóta ráðgjafar sérfræðinga okkar í versluninni,“ segir Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO, í tilkynningunni.

Þá kemur fram að í tilefni opnunarinnar séu tilboð á völdum vörum í nýju ELKO versluninni í Smáralind frá opnunardegi í dag og fram yfir næstu helgi.

Fyrstu viðskiptavinir nýju búðarinnar kynna sér vöruúrvalið og tilboð sem eru í gangi vegna opnunarinnar.
Fyrstu viðskiptavinir nýju búðarinnar kynna sér vöruúrvalið og tilboð sem eru í gangi vegna opnunarinnar. Mynd/ÓKÁ