Tólf mánaða verðbólga hjaðnar úr 5,2 prósentum í 5,1 prósent samkvæmt nýbirtri mælingu Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Vísitala neysluverðs án húsnæðis mælist 4,6 prósent.
Greining Íslandsbanka spáði því að ársverðbólga myndi standa í stað í maí á meðan greiningardeild Landsbankans spáði því að verðbólga myndi hjaðna úr 5,2 prósentum í 4,9 prósent. Niðurstaðan er því þar á milli.
„Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí 2026, er 684,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,07% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 546,3 stig og lækkar um 0,13% frá apríl 2026,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.
Fram kemur að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hafi aukist um 0,6 prósent með 0,13 prósenta áhrifum á vísitöluna. Verð á dísli hafi lækkaði um 7,0 prósent um -0,07 prósenta áhrifum og verð á bensíni um 7,3 prósent umeð -0,14 prósenta áhrifum á vísitöluna.
„Þann 1. maí var virðisaukaskattur á dísel og bensín lækkaður úr 24% í 11%. Ef verð á þessum eldsneytisgjöfum er reiknað með 24% virðisaukaskatti í stað 11% væri verð á dísel 3,9% hærra en fyrir mánuði (áhrif á vísitölu 0,04%) og verð á bensíni 3,6% hærra (0,07%). Heildaráhrif virðisaukaskattsbreytingarinnar á vísistölu neysluverðs eru því metin um 0.32% til lækkunar.“