Sinna jarðborunum á Nevis og undirbúa djúpborunarverkefni

Á næstu misserum koma Jarðboranir jafnframt að IDDP-3 djúpborun til nýtingar jarðhita sem fyrirtækið segir af mörgum talið eitt metnaðarfyllsta jarðhitaverkefni í heiminum.

Mynd/Jarðboranir

Jarðboranir hf. hafa undirritað samning um heildstæða jarðhitaborunarþjónustu á eyjunni Nevis í Karíbahafi.

Samningur Jarðborana er við NEVLEC (Nevis Electricity Company Limited) um heildstæða jarðhitaborunarþjónustu (e. turn-key) á eyjunni Nevis í Karíbahafi og tekur sá samningur til borunar á sex háhitaholum.

„Þetta verkefni er hluti af umfangsmikilli jarðhitaáætlun Nevis og nærliggjandi eyja og er því ætlað að leggja grunninn að framleiðslu á endurnýjanlegri raforku fyrir svæðið,“ segir í tilkynningunni.

Í tengslum við verkefnið verði stór bor fluttur frá Íslandi til Nevis og gert ráð fyrir að allt að 100 manns muni vinna við framkvæmdirnar, bæði hér á landi og á Nevis á meðan verkinu stendur.

Á næstu misserum muni Jarðboranir jafnframt koma að borun IDDP-3, sem sé samstarfsverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Orkuveitunnar, Landsvirkjunar og HS Orku og feli í sér djúpborun til nýtingar jarðhita.

„Þetta verkefni er af mörgum talið eitt metnaðarfyllsta jarðhitaverkefni í heiminum.“

Á undanförnum 30 árum hafi Jarðboranir unnið að fjölmörgum borverkefnum víða um heim, meðal annars á Filippseyjum,  Azoreyjum, Djibouti og á Nýja-Sjálandi.

Um þessar mundir fagna Jarðboranir því líka að 80 ár eru liðin frá því að borsaga félaganna hófst. Af því tilefni var boðað til fagnaðar í húsnæði ON við Hellisheiðarvirkjun síðdegis í dag og meðal gesta forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Jóhann Páll Jóhannsson, orkumálaráðherra.

„Óhætt er að segja að saga jarðborana sé samofin sögu landsins, orkunýtingar og raunar samfélagsins alls. Frá því að Jarðboranir Ríkisins hófu starfsemi við rannsóknarboranir eftir heitu vatni til nýtingar á höfuðborgarsvæðinu fyrir miðja síðustu öld hefur fyrirtækið í dag haslað sér völl sem leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í háhitaborunum.“

Í tilkynningunni er rakið hvernig stofnun Ræktunarsambands Flóa og Skeiða (Ræktó) eigi sér rætur í samvinnuhugsun bænda í Flóa og Skeiðahreppi um miðja síðustu öld, þar sem meginmarkmið hafi verið að þurrka upp votlent og illfært land og bæta skilyrði til búsetu og landbúnaðar.

„Í dag er Ræktó einn öflugasti borverktaki landsins og hefur fyrirtækið komið að fjölmörgum borverkefnum sem hafa gjörbreytt lífsgæðum fólks um land allt með aukinni nýtingu á köldu og heitu vatni. Í dag er fyrirtækið lykilsamstarfsaðili stærstu landeldisfyrirtækja landsins í borunum á sjótökuholum til nýtingar á sjóvatni í eldiskerjum á landi.“

Rifjað eru upp að árið 2015 hafi þessir tveir sögulegu þræðir sameinast þegar eignarhald Jarðborana hf. og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða varð sameiginlegt.

„Þar með tengdist arfur landræktar og samvinnu við alþjóðlega leiðandi háhitaborþekkingu, í takt við þróun Íslands frá landbúnaðarsamfélagi til orkuknúinnar þekkingarþjóðar.“