Halli á vöruskiptum við útlönd nam 485,7 milljörðum króna árið 2025, samanborið við 424,5 milljarða árið áður, á gengi hvors árs.
Í nýrri samantekt Hagstofunnar kemur fram að verðmæti útflutnings haf numð 923,2 milljörðum króna á síðasta ári samanborið við 932,1 milljarð árið áður. Verðmæti útflutnings dróst því saman um eitt prósent á milli ára.
„Á sama tíma jókst verðmæti innflutnings um 3,9% og nam 1.408,9 milljörðum króna árið 2025.“
Halli á vöruskiptum hafi því verið 61,2 milljörðum króna meiri árið 2025 en árið 2024, á gengi hvors árs.
Væri halli ársins 2024 hins vegar uppreiknaður með vísitölu neysluverðs þá teldist hann 443 milljarðar króna og munurinn aðeins minni á milli áranna, eða 42,7 milljarðar 2025 í óhag.
Verðmæti útflutnings dróst saman um níu milljarða
„Verðmæti vöruútflutnings árið 2025 var 9,0 milljörðum króna minna en árið 2024 á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51,7% alls útflutningsverðmætis og dróst verðmæti þeirra saman um 1,9% samanborið við árið 2024.“
Hagstofan segir útflutning á áli og álafurðum átt stærsta hlutdeild í útflutningi iðnaðarvara árið 2025 eða 34,5 prósent af heildarútflutningsverðmæti.
„Verðmæti útfluttra sjávarafurða var 38,9% af heildarútflutningsverðmæti og jókst um 3,6% frá fyrra ári.“
Mesta hlutdeild í útflutningsverðmæti sjávarafurða árið 2025 hafi svo átt ferskur fiskur (27,2 prósent) og fryst flök (29,4 prósent).
„Stærstu viðskiptalönd í vöruútflutningi árið 2025 voru Holland, Bretland og Bandaríkin.“
52,2 milljörðum meira verðmæti innflutnings
Þá segir Hagstofan að á síðasta ári hafi verðmæti vöruinnflutnings verið 52,2 milljörðum króna meira en árið 2024 á gengi hvors árs.
Þannig hafi verðmæti innflutnings fjárfestingavara aukist um 19,4 prósent á milli ára, einkum vegna aukningar í innfluttum fjárfestingarvörum tengdum starfsemi gagnavera.
„Verðmæti innfluttra flutningatækja jókst um 6,5%, þar af nær tvöfaldaðist verðmæti fólksbílainnflutnings þar sem aukningin nam 85,2%.“
Á sama tíma hafi verðmæti innflutnings eldsneytis og smurolía dregist saman um 18,1 prósent á milli ára.
„Stærstur hluti innflutningsverðmætis árið 2025 var vegna fjárfestingarvara, eða 30,4%, og hrá- og rekstrarvara, 25,8%.“
Neysluvörur voru 13,2 prósent innflutningsins og flutningatæki 12,8%. Rétt undir tíu prósentum hvort voru svo annars vegar eldsneyti og smurolíur og hins vegar matar- og drykkjarvara.
„Stærstu viðskiptalöndin í innflutningi voru Kína, Noregur og Þýskaland.“
Útflutningur til Bandaríkjanna dróst saman
Hagstofan bendir jafnframt á að útflutningur Íslands til Bandaríkjanna hafi numið 85,5 milljörðum króna árið 2025, sem jafngildi um 10 prósenta samdrætti frá árinu 2024.
Til samanburðar hafi útflutningurinn numið um 85,7 milljörðum árið 2023.
„Samdráttinn árið 2025 má rekja til samdráttar í útflutningi sjávarafurða og iðnaðarvara, hvort sem litið er til verðmætis eða magns útflutnings.“
Útflutningsverðmæti sjávarafurða segir Hagstofan hafa dregist saman um 11,7 prósent á milli ára.

„Þar munar mest um minni útflutning á ferskum fiski, þar sem samdráttur útflutningsverðmætis nam 12,8%, auk þess sem útflutningur á lýsi minnkaði um 48,5%.“
Þá kemur fram að samdráttur í útflutningsverðmæti iðnaðarvara hafi verið 16,3 prósent á milli ára.
„Mest dró úr verðmæti útflutnings annarra iðnaðarvara, eða um 31,2%, auk þess sem útflutningsverðmæti kísiljárns minnkaði um 25,7%.“
Á móti þessum samdrætti hafi útflutningur á eldisfiski aukist, hvort sem litið er til verðmætis eða magns.
„Útflutningsverðmæti eldisfisks jókst um 24,9% á milli ára.“