Nýjar sex þúsund fermetra höfuðstöðvar Festi hf. koma til með að rísa við Urðarhvarf 10 í Kópavogi. Af heildarrými byggingarinnar verða um fjögur þúsund fermetrar lagðir undir undir skrifstofur rekstrarfélaga samstæðunnar, Krónunnar, N1, ELKO, Lyfju, Yrki og móðurfélagsins Festi, auk tæplega 800 fermetra verslunarrýmis á jarðhæð og lageraðstöðu í kjallara.
Fram kemur í tilkynningu félagsins að Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, hafi á dögunum tekið fyrstu skóflustunguna að viðstaddri Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs.

„Samhliða stækkun samstæðunnar undanfarin ár hefur Festi lagt áherslu á að sameina skrifstofur og stoðþjónustu félaganna undir eitt þak til að efla samstarf og lækka kostnað,“ segir þar.
Bent er á að bæði ELKO og Lyfja hafi á síðastliðnum tveimur árum flutt skrifstofur sínar í núverandi höfuðstöðvar félagsins á Dalvegi í Kópavogi og það sagt hafa skilað góðum árangri.
„Við endurskoðun á núverandi leigusamningi var tækifærið nýtt til að meta húsnæðisþörf samstæðunnar til lengri tíma, með áherslu á hagræði, aðstöðu og sveigjanleika.“
Haft er eftir Ástu S. Fjeldsted, forstjóra Festi, að nýja húsnæðið búi samstæðunni betri aðstöðu og aukinn sveigjanleika til framtíðar.
„Í ljósi þeirra miklu tæknibreytinga sem nú eiga sér stað þarf að huga vandlega að vinnustað framtíðarinnar,“ segir hún.
Nýja húsnæðið muni bæta vinnuaðstöðu starfsfólks og verði hannað með það fyrir augum að geta aðlagast breytingum á starfsemi samstæðunnar, hvort sem er í stækkun eða minnkun.
„Það húsnæði sem er ekki nýtt verður leigt út til annarra aðila eftir aðstæðum hverju sinni.“
Ásta segir Urðarhvarfið vel staðsett, ekki síst með nýrri tengingu við Arnarnesveginn. Þá hafi reynsla félagsins af skrifstofu- og atvinnurekstri í Kópavogi verið afar góð.
„Við hlökkum til að fylgjast með uppbyggingunni og stefnum að því að flytja innan þriggja ára,“ segir Ásta.