Nýr vettvangur til að auka samkeppnishæfni á Norðurlöndum

Nordic Compass (Vegvísir Norðurlandanna) er nýr samstarfsvettvangur norræns atvinnulífs stofnaður til að innleiða og efla hagnýtar umbætur á sviði fjármálamarkaða, djúptækni (Deep Tech), varnarmála og orkumála.

Heimasíða Nordic Compass, eða Vegvísis Norðurlandanna.
Heimasíða Nordic Compass, eða Vegvísis Norðurlandanna. Mynd/Samsett

Leiðandi norræn fyrirtæki, sjóðir og samtök hafa stofnað Nordic Compass nýjan vettvang fyrir víðtækt samstarf atvinnulífsins á Norðurlöndum.

Í tilkynningu um stofnunina kemur fram að þéttari samvinna hafi að markmiði að efla sameiginlega umgjörð og nýta styrkleika norræns atvinnulífs til að ná mælanlegum árangri.

Þá kemur fram að fyrstu verkefnin verði kynnt á ráðstefnu Nordic Compass í Gautaborg í Svíþjóð í nóvember næstkomandi.

Stjórn Nordic Compass er sögð samanstanda af reyndum leiðtogum frá öllum Norðurlöndum.

Íslensk aðkoma

Jyrki Katainen.

Formaður er Jyrki Katainen, forstöðumaður samskipta og regluvörslu hjá Nordea, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands og fyrrverandi varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með málefni atvinnu, vaxtar, fjárfestinga og samkeppnishæfni á sinni könnu. Varaformaður er Kristin Skogen Lund, stjórnarformaður INSEAD.

Í stjórn er einnig fulltrúi Íslands, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi hf. og með henni Øyvind Eriksen, forstjóri Aker ASA, Antti Herlin, formaður stjórnar KONE Corporation, Lars Rebien Sørensen, stjórnarformaður Novo Nordis Foundation og Jacob Wallenberg, stjórnarformaður Investor AB og varaformaður stjórnar Wallenbert Investments AB.

Framkvæmdastóri er Christian Frigast, stjórnarformaður Enterprise Think Tank.

Ásta Sigríður Fjeldsted.

Í tilkynningunni er haft eftir Ástu Fjeldsted að reynsla Íslands sýni hvernig smærri hagkerfi geti brugðist hratt við þegar atvinnulíf, stjórnvöld og frumkvöðlar vinni saman.

„Nordic Compass flytur þennan samstarfsanda yfir á öll Norðurlöndin og tryggir að þau haldi áfram að vera leiðandi miðstöð fyrir sjálfbærar atvinnugreinar, stafræna nýsköpun og ábyrga viðskiptahætti,“ segir hún.

Þá er gagnaversfyrirtækið atNorth, sem rætur á á Íslandi, meðal stofnfyrirtækja, en á vef fyrirtækisins er haft eftir Evu Sóleyju Guðbjörnsdóttur, fjármálastjóra og aðstoðarforstjóra atNorth, að þar á bæ sjái þau af eigin raun vaxandi samruna stafrænnar innviða, orkukerfa og háþróaðrar tölvuvinnslu á Norðurlöndum.

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir.

„Með því að vinna saman í gegnum Nordic Compass getum við styrkt stöðu Norðurlandanna í leiðandi, sjálfbærri þróun atvinnulífs, stuðlað að hraðari nýsköpun og eflt samkeppnishæfni svæðisins,“ segir hún.

Segja vannýtt tækifæri í samstarfi

Í tilkynningu Nordic Compass er bent á að saman séu Norðurlönd með stærstu hagkerfum heims og enn sé að finna vannýtta möguleika til samstarfs á milli landanna.

Haft er eftir Jyrki Katainen, stjórnarformanni Nordic Compass, að Evrópa standi nú frammi fyrir tímabærri umræðu um samkeppnishæfni og endurnýjun.

„Aðgerðir á evrópskum vettvangi munu taka tíma. Norðurlönd geta brugðist hraðar við og hrint verkefnum í framkvæmd á skilvirkan hátt. Stofnað er til Nordic Compass til að hjálpa Norðurlöndum að nýta fyrirliggjandi tækifæri ríkja og atvinnulífs til að vinna saman, endurmóta markaði, setja ný viðmið og knýja fram nýsköpun á mikilvægustu sviðum samtímans,“ segir hann.

Fram kemur að á fyrsta starfsári Nordic Compass verði áhersla lögð á fjögur stefnumótandi svið sem þarfnist metnaðarfullra umbóta eigi Norðurlönd að viðhalda samkeppnishæfni og viðnámsþrótti á alþjóðavísu. Þau eru fjármálamarkaðir, djúptækni, varnarmál og orkumál.

„Sérfræðingar á hverju sviði munu skilgreina verkefni sem hægt er að innleiða og skala með stuðningi atvinnulífsins og samhæfingu milli landanna.“

Haft er eftir Kristin Skogen Lund, varaformanni stjórnar Nordic Compass, að einkageirinn gegni lykilhlutverki í að styrkja langtímaviðnámsþrótt og samkeppnishæfni á Norðurlöndum.

„Ég tel að þegar þessi hópur leiðandi fyrirtækja sameinar krafta sína getum við náð árangri í að styrkja samræmingu milli landanna. Það mun aftur flýta fyrir nýsköpun og hjálpa okkur að efla samkeppnishæfni þeirra og styrk,“ segir hún.

Fyrirtæki, stofnanir og hagsmunasamtök

Nordic Compass er sagt leiða saman yfir 25 stór norræn fyrirtæki, sjóði og samtök í mismunandi hlutverkum.

Þar á meðal séu Aker ASA, Aker Solutions, Alfa Laval, atNorth, Carl Bennet AB, Chr. Augustinus Fabrikker, Danfoss, Embla Medical, EQT, Ericsson, EY, The Finnish Innovation Fund Sitra, KONE, Kromann Reumert, McKinsey & Company, Nasdaq Nordic, Nokia, Nordea, Nordic Innovation, Novo Nordisk Foundation, Nscale, Saab, SEB, Vattenfall, Wallenberg Investments, og Ørsted.

„Sem meðstofnendur sjá Dalberg og Enterprise Think Tank um daglegan rekstur.“

Heildarlisti fyrirtækja sem koma að Nordic Compass er svo sagður aðgengilegur á vefsíðunni www.nordiccompass.org.

Að auki kemur fram að norræn ráðgjafarnefnd veiti innsýn frá hverju landi með þátttöku átta leiðandi fulltrúa Norðurlanda auk framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.

„Þá kemur Nordic Compass til með að vinna með atvinnugreinasamtökum, hagsmunasamtökum og öðrum hagaðilum um Norðurlöndin öll að þessum verkefnum til að tryggja víðtæka þátttöku, samræmingu og stuðning.“