Íslandsbanki spáir óbreyttri verðbólgu í þessum mánuði

Gangi spáin eftir mun verðbólgan standa í stað og mælast 5,2 prósent.

Föt á rekka. Verðbólga. Vísitala neysluverðs.
Föt á rekka. Mynd/Anthony Sebbo á Unsplash

Skammur tími til að ná niður verðbólgu verður til þess að hún mælist yfir viðmiðunarmörkum kjarasamninga í ágúst samkvæmt bráðabirgðaspá Greiningar Íslandsbanka. Í spánni er gert ráð fyrir að ársverðbólga standi í stað í þessum mánuði.

„Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,2% í maí frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir mun verðbólgan standa í stað og mælast 5,2%,“ segir í umfjöllun bankans.

Helstu hækkunarvaldar í mánuðinum verði reiknuð húsaleiga auk flugfargjalda.

„Á móti vegur lækkun eldsneytisverðs í kjölfar aðgerða stjórnvalda sem tóku gildi í byrjun maí.“

Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs 28. maí næstkomandi.