Vestfirðingar geta sótt vörur úr Krónunni hjá N1 á Ísafirði

Krónan segir orðið fullt í fyrstu sendingu á Vestfirðina og til skoðunar að senda líka til Bolungarvíkur.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Daníel Viðar Guðmundsson, stöðvarstjóri N1 á Ísafirði.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Daníel Viðar Guðmundsson, stöðvarstjóri N1 á Ísafirði. Mynd/Krónan

Nú geta íbúar á Ísafirði, Bolungarvík, Flateyri, Súðavík, Suðureyri og Þingeyri nýtt sér Snjallverslun Krónunnar og sótt vörur sínar á afhendingarstað hjá N1 á Ísafirði.

Í tilkynningu Krónunnar kemur fram að pantanir séu teknar saman í verslun Krónunnar á Akranesi alla miðvikudaga, en fyrstu pantanirnar verða afhentar í dag.

„Tíðni ferða verður endurskoðuð í takt við eftirspurn,“ segir þar jafnframt.

Haft er eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, að þjónustan sé svar við skýru ákalli frá íbúum svæðisins sem lengi hafi kallað eftir fjölbreyttari dagvöru á samkeppnishæfu verði.

„Eftirspurnin er greinilega til staðar því þegar er orðið fullt í fyrstu sendingu. Ef vel gengur verður næsta skref að skoða fleiri afhendingarstaði á svæðinu, þar á meðal í Bolungarvík, sérstaklega í ljósi nýlegra breytinga á verslunarþjónustu í bænum,“ segir hún.

Þjónustan snúist fyrst og fremst um að jafna aðgengi landsmanna að matvöru og að fólk geti verslað á sínum forsendum, óháð búsetu.

Samstarfsverkefni

Fram kemur að verkefnið sé unnið í samstarfi við N1 á Ísafirði þar sem afhending fari fram.

„Daníel Viðar Guðmundsson, stöðvarstjóri N1 við Hafnarstræti, þekkir Krónuna vel sem fyrrverandi starfsmaður, síðast sem verslunarstjóri Krónunnar í Vestmannaeyjum.“ 

Eftir honum er haft að frábært sé að fá að vinna aftur með Krónunni að þessu verkefni.

„Við hjá N1 tökum vel á móti þeim sem sækja pantanir sínar hér. Þetta er þjónusta sem einfaldar fólki lífið og gerir því kleift að versla á hagstæðu verði án mikillar fyrirhafnar,“ segir hann.

Krónan segir að með þessari viðbótarþjónustu nái Snjallverslun Krónunnar nú til yfir 90 póstnúmera um land allt og þjónusti um 360 þúsund íbúa, eða yfir 90 prósent landsmanna.