Seðlabankinn er líklegri til að hækka stýrivexti um fjórðung úr prósenti fremur en um hálft prósentustig þegar kemur að næstu vaxtaákvörðun 20. maí næstkomandi.
Þetta kemur fram í uppfærðu mati greiningardeildar Landsbankans í Mánaðamótum, mánaðarlegu fréttabréfi um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

„Verðbólga hjaðnaði í apríl úr 5,4% í 5,2% en við höfðum spá því að verðbólga myndi hækka upp í 5,5% í apríl,“ segir þar.
Greiningardeild bankans segir að mestu hafi munað um að flugfargjöld hafi hækkað minna en spáð var.
„Þessi mæling gerir það að verkum að við teljum líkur á að Seðlabankinn taki mögulega minna skref en ella til hækkunar stýrivaxta í maí og hækki vexti um 0,25 frekar en 0,5 prósentustig.“
Greiningardeildin spáir því að verðbólga haldi áfram að hjaðna næstu mánuði, en áréttar um leið að sú spá sé háð mikilli óvissu sem tengist helst þróun heimsmarkaðsverðs á olíu.
„Stjórnvöld hafa boðað lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti úr 24% í 11%. Sú aðgerð lækkar vissulega verð á dælunni, en hækkun olíuverðs hefur áhrif á móti til hækkunar.“
Í umfjöllun bankans er jafnframt vísað til hagspár greiningardeildar Landsbankans í nýliðnum mánuði þar sem gert hafi verið ráð fyrir hófstilltum vexti næstu árin.
„Sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu mun vara lengur en áður var spáð. Bakslag í baráttunni við verðbólgu og hærri stýrivextir munu valda því að vöxtur innlendrar eftirspurnar verður lítill og fjárfesting dregst saman á sama tíma en á sama tíma verður útflutningsvöxtur með ágætum, ekki síst vegna loðnuveiða og eins þjónustuútflutnings tengdum gagnaverum.“
Nálgast má Mánaðamót, rit greiningardeildarinnar, í PDF-formi á vef bankans.