ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur samþykkt leiðbeiningar um ríkisaðstoð til flutninga á landi og fjölþátta flutninga. Markmiðið er sagt vera að tryggja samræmda notkun reglnanna á öllu EES-svæðinu.
Fram kemur á vef ESA að nýju leiðbeiningarnar séu í samræmi við nýsamþykktar leiðbeiningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og geri einfaldara og fljótlegra fyrir EES/EFTA-ríkin að styðja við sjálfbærar lausnir við flutninga á landi.
ESA geti þannig lagt mat á slík mál á sama grundvelli og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gerir fyrir aðildarríki ESB.
„Mun þetta stuðla að skýrari reglum og jafnari samkeppnisskilyrðum innan EES. Jafnframt er skýrt hvernig ríkisstyrktar ráðstafanir á sviði sjálfbærra flutninga, sem þarf að tilkynna og þurfa samþykki ESA, verða metnar.“
Þá er bent á að framkvæmdastjórn ESB hafi líka samþykkt í mars síðastliðnum reglugerð um hópundanþágur vegna ríkisstyrktrar aðstoðar vegna flutninga.
„Reglugerðin hefur enn ekki verið tekin upp í EES-samninginn. Þegar hún tekur gildi fyrir EFTA-ríkin í EES verða ákveðnar tegundir aðstoðarinnar, t.a.m. til járnbrauta, skipgengra vatnaleiða innanlands og sjálfbærra samflutninga undanþegnar kröfunni um tilkynningaskyldu fyrirfram og samþykki frá ESA.“
Fram kemur að leiðbeiningarnar hafi nú verið formlega samþykktar af ESA og setji sameiginlegan ramma um mat á ríkisaðstoðarráðstöfunum á sviði flutninga á landi og fjölþátta flutningum á Íslandi, í Liechtenstein og Noregi.
Nýju leiðbeiningarnar eru sagðar koma í stað leiðbeininga ESA frá 2008 um ríkisaðstoð til járnbrautarfyrirtækja og fela í sér eftirfarandi:
- Þær heimila stuðning við sjálfbærari flutningslausnir á landi en vegaflutninga, þar á meðal járnbrautir, skipgengar vatnaleiðir og sjálfbæra fjölþátta flutninga.
- Þær skýra svigrúm fyrir rekstrar- og fjárfestingarstuðning, meðal annars til járnbrautarþjónustu, innviða fyrir skipgengar vatnaleiðir og til að koma á fót nýjum viðskiptaleiðum. Þær skýra einnig möguleikann á stuðningi í formi bóta vegna opinberra þjónustukvaða í vöruflutningum á járnbrautum.
- Þær opna fyrir aukinn sveigjanleika í stuðningi við grænu og stafrænu umskiptin, meðal annars með aðgerðum sem draga úr ytri kostnaði flutninga og stuðla að samvirkni.
- Þær auðvelda nýjum aðilum aðgang að markaði fyrir sjálfbæra flutninga á landi, meðal annars með auknum aðgangi að fjármögnun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, minni skráð fyrirtæki og fyrirtæki sem fjárfesta í veltibúnaði og skipum fyrir skipgengar vatnaleiðir.
Ákvörðun ESA má nálgast hér.