Tólf mánaða verðbólga lækkar þótt vísitala neysluverðs hækki

Hagstofa Íslands.
Hagstofa Íslands. Mynd/Google Earth

Ársverðbólga mælist nú 5,2 prósent sem er lækkun frá fyrra mánuði þegar hún mældist 5,4 prósent.

Í tilkynningu Hagstofunnar segir að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,81 prósent milli mánaða í apríl og standi í 683,8 stigum.

Fram kemur að reiknuð húsaleiga hafi aukist 0,8 prósent, með 0,16 prósenta áhrifum á vísitöluna 0,16%), verð á bensíni hækkað um 12,1 prósent með 0,21 prósent vísitöluáhrif og verð á dísilolíu hafi hækkaði um 19,7% með 0,16% prósenta áhrifum.

Þá hafi verð á flugfargjöldum til útlanda hækkað um 6,1 prósent sem hafi 0,14 prósenta áhrift til hækkunar vísitölunnar á milli mánaða.

„Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.