Skólahreysti og Krónan í samstarf til þriggja ára

Skólahreysti er hreystikeppni grunnskólabarna í 9. og 10. bekk sem hefur verið sýnd á RÚV ár hvert.

Freyja Leopóldsdóttir forstöðumaður markaðsmála hjá Krónunni, Axel Óskar Andrésson nýr framkvæmdastjóri Skólahreysti, Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar og Andrés Guðmundsson upphafsmaður og stofnandi Skólahreysti innsigluðu samstarfið í ávaxta- og grænmetisdeild Krónunnar á dögunum.
Freyja Leopóldsdóttir forstöðumaður markaðsmála hjá Krónunni, Axel Óskar Andrésson nýr framkvæmdastjóri Skólahreysti, Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar og Andrés Guðmundsson upphafsmaður og stofnandi Skólahreysti. Mynd/Viktor Freyr

Skólahreysti og Krónan hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Fram kemur í tilkynningu að samstarfið miði að því að styrkja enn frekar hreyfingu og hollt mataræði meðal barna og ungmenna, auk þess að styðja við framkvæmd og þróun keppninnar.

„Samstarfið markar jafnframt aukna áherslu á bæði hreyfingu og mataræði í starfi Skólahreysti.“ 

Skólahreysti er hreystikeppni grunnskólabarna í 9. og 10. bekk sem hefur verið sýnd á RÚV ár hvert.

„Markmið keppninnar er að hvetja börn til almennrar hreyfingar og þátttöku í íþróttum þar sem keppendur reyna að mestu á eigin líkamsþyngd í fjölbreyttum þrautum.“ 

Ný kynslóð tekin við

Fram kemur að kynslóðaskipti hafi orðið hjá Skólahreysti, þar sem þrír synir stofnenda hafo tekið við rekstri keppninnar.

„Axel Óskar Andrésson er nú framkvæmdastjóri keppninnar, en foreldrar hans, Andrés Guðmundsson og Lára Berglind Helgadóttir, hafa staðið að Skólahreysti frá upphafi.“

Haft er eftir Axel Óskari að nýjar áherslur fylgi nýrri kynslóð en áfram verði þó horft til gildanna sem foreldrar hans hafi fylgt í öll þessi ár.

„Stuðningur samstarfsaðila eins og Krónunnar skiptir miklu máli til að halda áfram að þróa og efla Skólahreysti. Það skiptir okkur einnig máli að fá inn sterkan aðila á matvörumarkaði sem hefur skýra sýn á lýðheilsu því þetta snýst ekki bara um hreysti og hreyfingu, heldur einnig um hollt og gott mataræði. Án góðs eldsneytis gerist lítið,“ segir hann.

Axel rifjar líka upp að þegar leppnin var fyrst haldin árið 2005 og hafi Annie Mist Þórisdóttir, sem síðar varð ein fremsta crossfit-íþróttakona heims, verið á meðal þátttakenda.

„Skólahreysti hefur því frá upphafi verið frábær stökkpallur fyrir krakka sem vilja láta til sín taka í íþróttum og stuðningur Krónunnar gerir okkur kleift að efla enn frekar lýðheilsu og hreyfingu grunnskólabarna í 9. og 10. bekk,“ segir Axel.

Sameiginleg sýn

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir í tilkynningunni að samstarfið falli vel að stefnu Krónunnar hvað varði lýðheilsu og vellíðan ungmenna.

Hluti samstarfsins er tenging keppninnar við valdar verslanir Krónunnar þar sem gestir fá tækifæri til að kynnast einföldum hreyfiþrautum úr keppninni.

Guðrún segir að síðastliðin ár hafi hjá Krónunni verið markvisst unnið að eflingu lýðheilsu með því að bjóða upp á breiðara úrval af hollum vörum, efldri fræðslu til neytenda og stuðningi við íþróttir í samfélaginu.

„Skólahreysti er keppni sem við trúum á því hún er opin öllum og ekki þarf að æfa ákveðna íþrótt til að taka þátt. Það rímar vel við okkar sýn á lýðheilsu. Okkur þykir vænt um að styðja fjölskyldu sem hefur lagt sitt af mörkum í tæp 20 ár að efla hreysti og heilbrigði grunnskólabarna og við hlökkum til að vera hluti af þeirri sögu,“ segir hún.