Boðuð breyting heilbrigðisyfirvalda á viðmiðum við verðlagningu lyfja getur aukið aðgengi að nýjum lyfjum á Íslandi.
Í tilkynningu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, er haft eftir Ölmu Möller heilbrigðisráðherra að í ákvörðunum um lyfjaverð á Íslandi verði nú í auknum mæli miðað við meðalverð á Norðurlöndum, í stað þess að miða við lægsta verð.
„Ákvörðunin er skýrt merki um aukinn vilja heilbrigðisyfirvalda til að bæta skilyrði fyrir markaðssetningu nýrra lyfja hér á landi. Ísland hefur lengi verið eftirbátur nágrannaþjóðanna þegar kemur að upptöku nýjustu lyfja,“ segja Frumtök.
Ráðherra greindi frá fyrirhugaðri breytingu í ávarpi sínu á afmælisráðstefnu Frumtaka sem fram fór í dag á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni: Hvað ræður í lyfjamálum – vísindin, peningarnir eða pólitíkin?
„Ef við setjum verðið of lágt getur það dregið úr hvata fyrirtækja til að koma með lyf hingað til lands. Með því að horfa til meðalverðs Norðurlanda erum við að leitast við að skapa jafnvægi milli kostnaðar og aðgengis, milli ábyrgðar og framfara, og milli þess að vera samkeppnishæf sem markaður, en á sama tíma skynsöm í ráðstöfun fjármuna. Þetta eru skref í átt að raunhæfari og sjálfbærari nálgun,“ sagði ráðherra.
Samkvæmt nýjustu könnun EFPIA, Evrópusamtaka frumlyfjaframleiðenda, hafði Ísland einungis tekið upp 34 prósent nýrra lyfja sem skráð voru í Evrópu á tilteknu árabili. Til samanburðar hafði Þýskaland, tekið 90 prósent lyfjanna í notkun og Danmörk 60 prósent.
Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka, segir ákvörðunina marka tímamót, en ákvörðun stjórnvalda eftir hrun um að miða ávallt við lægsta verð á Norðurlöndum hafi verið raunveruleg markaðshindrun fyrir ný lyf, bæði vegna áhrifa á verðmyndun í öðrum löndum og vegna annars tilkostnaðar.
„Ísland er örmarkaður sem engu að síður lýtur sömu kröfum og stór ríki. Yfirlýsing ráðherra er því mjög mikilvæg stefnubreyting sem við fögnum,“ segir hann.
Jafnframt bendir hann á að bættu aðgengi að nýjustu lyfjum fylgi víðtækur samfélagslegur ávinningur, meðal annars með því að draga úr álagi á heilbrigðiskerfið og veikindatengdum fjarvistum.
„Lyf eru ekki aðeins meðferð, heldur fjárfesting í framtíð samfélagsins.“
Mat Frumtaka er að kostnaðaráhrif breytingarinnar verði takmörkuð. Hluti þeirra lyfja sem ekki hafa fengist skráð hafi engu að síður verið notaður í gegn um undanþágukerfi, oft með meiri kostnaði en skráning hefði haft í för með sér. Þá hafi breytingin engin á hrif á útboð og innkaupaferla Landspítalans.