Magnús Jón Magnússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri ræstinga- og fasteignaumsjónarfyrirtækisins Daga. Í tilkynningu kemur fram að hann hafi þegar hafið störf. Þá taki hann jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins.
„Magnús býr yfir mikilli reynslu á sviði fjármála og rekstrarstjórnunar og kemur til Daga frá Icelandair, þar sem hann starfaði í tíu ár,“ segir í tilkynningunni.
Þar er hann sagður síðast hafa gegnt lykilhlutverki í stefnumótun og eftirfylgni rekstrar, en áður verið sérfræðingur á sviði fjármála og rekstraráætlunargerðar.
Haft er eftir Brynhildi Guðmundsdóttur, forstjóra Daga, að ráðning Magnúsar sé mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Daga.
„Með reynslu sinni og þekkingu mun hann styðja við aukna skilvirkni, styrkja fjármálastýringu og stuðla að frekari þróun á stafrænu og tæknilegu umhverfi Daga. Magnús hefur víðtæka þekkingu á fjármálastjórnun, greiningu og umbótaverkefnum sem mun nýtast vel í áframhaldandi vexti félagsins,“ segir hún.
Fram kemur að Magnús sé með MBA-gráðu frá Schiller International University í Flórída og sé jafnframt viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.