Samkomulag hefur náðst um kaup Lyfju á rekstri Borgar Apóteks í Borgartúni af Einari Birgi Haraldssyni lyfjafræðingi. Fram kemur í tilkynningu að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, er sögð sjá mikil tækifæri í kaupunum á Borgar Apóteki sem komi til með að styðja við áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins.
Með kaupunum komi heilsutengdum vörum og húðvörum til með að fjölga í vöruúrvali apóteksins.
Jafnframt fái viðskiptavinir Borgar Apóteks aðgang að sölu- og dreifikerfi Lyfju, þar á meðal netverslun og Lyfju appinu, með það að markmiði að bæta þjónustu.
„Borgar Apótek hefur byggt upp öflugan rekstur og sinnt faglegri þjónustu í sínu nærumhverfi undir stjórn Einars Birgis. Við hjá Lyfju munum áfram leggja áherslu á persónulega þjónustu og hlökkum til að byggja ofan á þann góða grunn sem hefur verið lagður í Borgar Apóteki,“ segir Karen Ósk í tilkynningunni.
Fram kemur að Einar Birgir Haraldsson hafi stofnað Borgar Apótek í nóvember 2013 og verið eini eigandi þess frá upphafi.
Haft er eftir Einari Birgi að kaup Lyfju á Borgar Apóteki marki nýjan kafla í rekstri apóteksins.
„Það hefur verið afar ánægjulegt að byggja upp Borgar Apótek frá stofnun og þjónusta viðskiptavini í Borgartúni og nágrenni. Ég er sannfærður um að með Lyfju sem nýjan eiganda skapist góð tækifæri til áframhaldandi þróunar og vaxtar. Ég er þakklátur viðskiptavinum fyrir traustið, ánægjuleg samskipti og góð ár í Borgartúni,“ segir hann.