Spá því að verðbólguákvæði kjarasamninga verði virkt

Greiningardeild Landsbankans sér merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir valdi því að sú staða komi til með að vara lengur en ella.

Ný Hagspá Landsbankans.
Ný Hagspá Landsbankans. Mynd/Samsett

Forsenduákvæði kjarasamninga vegna verðbólgu kemur til með að virkjast í haust samkvæmt nýrri spá greiningardeildar Landsbankans. Gert er ráð fyrir að verðbólga mælist 4,7 prósent í ágúst.

Greiningardeildin er engu að síður vongóð um lausn sem verði til þess að launahækkanir verði í takti við það sem kjarasamningar gerðu ráð fyrir.

Nýbirt Hagspá Landsbankans fram til 2028 segir hagkerfið í hægum vexti. Horfur eru sagðar á að sú kólnun sem verið hafi í hagkerfinu undanfarið vari lengur en áður var spáð.

„Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.“

Grt er ráð fyrir 1,7 prósenta hagvexti í ár sem er yfir 1,3 prósenta hagvexti síðasta árs.

„Hagvöxturinn verður útflutningsdrifinn þar sem við gerum ráð fyrir auknum þjónustuútflutningi sem má að mestu rekja til þjónustu gagnavera. Vöxtur innlendrar eftirspurnar verður lítill og fjármunamyndun dregst saman.“

Bent er á að bakslag hafi orðið í baráttunni við verðbólgu þegar hún tók að hækka undir lok síðasta árs og á fyrstu mánuðum þessa árs.

„Gjaldahækkanir hins opinbera spiluðu þar stórt hlutverk ásamt því sem hækkun olíuverðs vegna átaka í Mið-Austurlöndum hefur haft mikil áhrif. Hversu langvinn sú barátta verður fer að miklu leyti eftir því hversu lengi stríðsátökin í Mið-Austurlöndum vara.“

Ekki sé þó utanaðkomandi þáttum einum um að kenna að verðbólga hafu aukist heldur hafi til að mynda miklar launahækkanir aukið verðbólguþrýsting.

„Staðan á vinnumarkaði er nokkuð tvísýn þessa stundina. Verðbólguspáin okkar gerir ráð fyrir því að verðbólga í ágúst mælist yfir 4,7% sem þýðir að forsenduákvæði í kjarasamningum vegna verðbólgu virkjast.“

Þá verði heimild til að segja samningum upp ef ekki næst að semja um viðbrögð.

„Þetta gerist á sama tíma og atvinnuleysi eykst og eftirspurn eftir starfsfólki hefur minnkað.“

Helstu atriði Hagspár:

  • Hagvöxtur er sagður verða 1,7% í ár, 1,6% á næsta ári og 1,8% árið 2028, gangi spáin eftir. Vöxturinn verði ekki síst borinn uppi af auknum þjónustuútflutningi sem rekja má til gagnavera.
  • Verðbólga hjaðni hægt og vextir verði hækkaðir. Spáð er 4,8% meðalverðbólgu í ár en óvissan í þróun verðbólgu sögð ekki síst fara eftir því hverju fram vindur í stríðinu í Mið-Austurlöndum.
  • Gert er ráð fyrir að vextir verði hækkaðir á næstu fundum peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Ekki er sagt útlit fyrir að hægt verði að lækka þá fyrr en á næsta ári.
  • Greiningardeildin á von á að áfram verði nokkuð gott jafnvægi á milli innflæðis og útflæðis á gjaldeyrismarkaði. Raungengi krónunnar er sagt mjög hátt. „Við eigum frekar von á að krónan veikist aðeins á spátímabilinu,“ segir í umfjölluninni.
  • Spáð er mjög hægum vexti einkaneyslu, aðeins 0,4% í ár og 1-2% árlega á síðari árum spátímans. Háir vextir, aukið atvinnuleysi og aukin svartsýni heimila muni líklega hafa áhrif hér.
  • Spáð er samdrætti í fjármunamyndum í ár upp á 2,3%, 1,9% árið 2027 og svo smávægilegum vexti árið 2028. Dræm sala nýbygginga og háir vextir letji íbúðauppbyggingu og atvinnuvegafjárfesting er sögð líkleg til þess að dragast saman eftir mikinn vöxt vegna uppbyggingar gagnavera.
  • Gert er ráð fyrir kraftmiklum vexti í þjónustuútflutningi sem má rekja til útfluttrar þjónustu tengdri gagnaverum. Þar að auki hafi verið ágætis loðnuvertíð 2026.
  • Ferðaþjónustan er sögð líkleg til þess að standa nokkurn veginn í stað, sem þó sé ágætis árangur þegar mikil óvissa ríki úti í heimi og flugfélagsins Play njóti ekki lengur við.
  • Alls er spáð 2,5% vexti útflutnings í ár en 3,6% á næsta ári, ekki síst vegna þess að þá verði mikill vöxtur í álútflutningi eftir að viðgerð ljúki á kerlínu Norðuráls sem bilaði haustið 2025.
  • Gert er ráð fyrir minna launaskriði en verið hafi. Þrátt fyrir að forsenduákvæði kjarasamninga vegna verðbólgu virkist er þess vænst að lausn finnist sem verði til þess að launahækkunum svipi til þess sem kjarasamningar gerðu ráð fyrir. Um þetta er sagt mjög mikil óvissa og ekki útlokað að forsendur um launaþróun séu vanmetnar í spánni.
  • Því er spáð að laun hækki almennt um 5,2% í ár og um tæp 5% árin þar á eftir. Atvinnuleysi hafi aðeins aukist undanfarið og gert ráð fyrir 4-4,5% atvinnuleysi öll ár spátímans á meðan hagkerfið haldist í rólegum takti.
  • Þróun á íbúðamarkaði er sögð hafa verið með rólegasta móti, en háir vextir, breytt lánaframboð og mikil íbúðauppbygging undanfarið hafi haft þar áhrif.
  • Gert er ráð fyrir að sú þróun haldi áfram á meðan vextir haldist háir og að nafnverð hækki einungis um 2% í ár og 2,6% á næsta ári, sem muni leiða til þess að raunverð lækki bæði árin.
  • Á síðasta ári spátímans er svo gert ráð fyrir að íbúðaverð hækki um 4%.

Alla Hagspánna má nálgast í PDF-formi á vef bankans.